Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Síða 10
Bjöm Magnússon
Björn Magnússon var skipaður dósent við guðfræðideildina 1. október
19453 og prófessor 1. júní 1949. Hann fékk lausn frá embætti 1. júlí
1974.4 Kennslugreinar hans voru nýjatestamentisfræði (einkum ritskýring
Jóhannesarritanna) og lengst af siðfræði og kennimannleg guðfræði.
Eiginkona hans var Charlotte K. Jónsdóttir, fædd 6. júní 1905, dáin 3.
september 1977.
Dr. Björn naut virðingar og vinsælda sem kennari við guðfræði-
deildina og hefur á sinn hógværa hátt haft mótandi áhrif á þann hluta
íslensku prestastéttarinnar sem naut kennslu hans þá þrjá áratugi sem hann
starfaði við guðfræðideildina. Einn samkennari hans við deildina hefur
mælt fyrir munn margra samstarfsmanna hans og nemenda er hann komst
þannig að orði um Björn sjötugan: „Engan mann hefi ég reynt af meira
heillyndi og heiðarleika í starfi en hann.“5
Dr. Björn hefur verið afkastamikill fræðimaður á sviði guðfræði og
ættfræði. Meðal ritverka hans má sérstaklega nefna orðalykla hans að
Passíusálmunum,6 Nýja7 og Gamla testamentinu,8 en vinna að slíkum
lyklum fyrir innreið tölvutækninnar var meira nákvæmnis- og
þolinmæðisverk en flestir gera sér grein fyrir. Rit þessi eru ómetanleg
hjálpartæki fyrir presta og aðra lesendur Biblíunnar og Passíusálmanna.
Þá samdi hann merk skýringarrit á sviði nýjatestamentisfræða.9 Á sviði
ættfræðinnar liggja eftir hann mikil verk.10 Greinagott yfirlit yfir
boðskap kennimannsins Björns Magnússonar er að finna í predikanasafni
hans Frá haustnóttum til hásumars.11 Þetta rit verðskuldar að mínu mati
meiri athygli en ég tel að það hafi hlotið. Þar er boðskapurinn um hið
bróðurlega tillit hinn rauði þráður sem gengur í gegnum ridð. Þar er það
boðað að öll sönn elska til Guðs hljóti að birtast út á við sem elska til
annarra manna.
3 Áður hafði hann verið settur dósent við guðfræðideild frá 1. apríl 1937 til 16.
nóvember sama ár og ráðinn aukakennari við deildina 7. janúar 1938 til 31. ágúst
sama ár.
4 Hann var loks ráðinn stundakennari frá 1. október til ársloka 1974 meðan ekki hafði
verið skipað í stöðu hans.
3 Þórir Kr. Þórðarson prófessor í afmælisgrein um Bjöm í Morgunblaðinu 17. maí
1974.
6 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar með orðalykli eftir Bjöm Magnússon prófessor.
Snæbjöm Jónsson, Rvk. 1950.
7 Orðalykill að Nýja testamentinu, Rvk. 1951. (545 s.)
8 Orðalykill að Gamla testamentinu. Rvk. 1976. (1092 s.) Þessi lykill hefur ekki verið
gefinn út, en vélritað eintak af honum er í vörslu guðfræðideildar Háskóla íslands.
9 Má þar nefna ritið Þér eruð Ijós heimsins. Siðrœn viðhorf í Ijósi fjallrœðunnar.
Akureyri 1944, Jóhannesarguðspjall: skýringar. Rvk. 1950 (Fjölrit, 194 s.) og
Jóhannesarbréfin. Skýringar, Rvk. 1954 (Fjölrit, 126 s.).
10 Má þar einkum nefna Ættir síðupresta. Rvk. 1960 og Vestur-Skaftfellingar 1703-
1966,1-IV. Rvk. 1970 og nú síðast Mannanöfn á íslandi samkvœmt manntölum 1801
og 1845. Sundurliðuð tala þeirra eftir sýslum. Safn til Sögu Islands og íslenskra bók-
mennta. 2. flokkur H4. íslenska bókmenntafélagið. Rvk. 1993.
11 Bjöm Magnússon, Frá hausmóttum til hásumars. Um nokkur meginatriði kristinnar
kenningar. Æskan. Rvk. 1965 (199 s.)
8