Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Blaðsíða 16
Bjöm Magnússon
og vilji saman í eitt: líf í samræmi við vilja himneska föðurins. Þannig
birtist það einnig í lífi hans og dauða. Hann kom fram sem heilsteyptur
persónuleiki, þar sem fullkomið samræmi er milli hinnar æðstu
þekkingar og hins göfgasta lífs. Það stafaði af því, að hann lifði sjálfur í
nánu samlífi við uppsprettu alls lífs og þekkingar, þá ótæmandi orkulind,
sem hann nefndi sjálfur himneska föðurinn.
En sérkenna kristindómsins er líka að leita „í kristninni frá öndverðu
til vorra daga”. Það er ekki nóg að athuga líf og lífsstarf meistarans,
heldur verður að taka tillit til þeirra hugmynda, sem það hefur vakið með
lærisveinum hans um lífið, höfund þess og tilgang, og til þeirra áhrifa,
sem það hefur haft á líf þeirra sem einstaklinga og heildar. En sérstaklega
er oss mikils virði, hvernig boðskapur Jesú og lífsstarf verkar á samtíð
vora, í lífi hennar og lífsskoðun. Kristindómurinn, eins og hann birtist í
dag, bindur í sér kerfi kenninga, séstaka siðgæðishugsjón, og í dýpsta eðli
sínu, samlíf við höfund lífsins: Guð.
4. Aðferð og efnisskipting.
Aðferðin, sem farið verður eftir í þessari ritgerð, verður því sú, að gera
grein fyrir boðskap Jesú í orðum hans og verkum, rekja stuttlega feril
boðskaparins gegnum aldirnar og áhrif hans á líf manna og lífsskoðun, og
setja hann fram í því ljósi, sem hann birtist í með samtíð vorri. Og sökum
þess, að oss er mests virði að þekkja kristindóminn eins og hann er frá
Jesú kominn og verkar í samtíðinni, þá verður megináherslan lögð á þau
atriði, en hin sögulega athugun eingöngu miðuð við það, að sýna
þróunina, sem tengir kristindóm nútíðarinnar við uppruna sinn.
í samræmi við það, sem að framan hefur sagt verið, mun í þessu máli
verða litið á sérkenni kristindómsins aðallega frá þrem sjónarmiðum. 1) í
fyrsta lagi mun verða litið á kristindóminn sem þekkingaratriði. Kemur
þar til greina kenning kristindómsins um Guð, um heiminn, um manninn
og um samband Guðs og manns. í öðru lagi verður litið á kristindóminn
sem líf frá Guði. í því sambandi vil ég sérstaklega ræða þau atriði í
opinberun Jesú, þar sem varla verða greind sundur þekkingaratriði og
þau, sem snerta viljalífið og tilfinningarnar. Mun ég þar ræða boðskapinn
um guðsríkið, um andann og um lífið í Guði. í þriðja lagi koma tíl greina
þau atriði, sem sérstaklega snerta viljalíf mannsins, hvemig guðlega lífið
verkar í heiminum. í því sambandi verða dregnar fram siðgæðiskröfur
Jesú, og sérstaklega hvernig þær verka í einstaklingunum og félags-
heildinni.
En eins og bent hefur verið á, er kristindómurinn, og sérkenni hans,
fyrst og fremst Jesús sjálfur. Því mun athugun mín byrja á honum. í
kristíndómnum hefur persónan, sem opinbemnina flutti, mótað meir en í
nokkmm öðmm trúarbrögðum svip hins trúarlega lífs. Sérkenni kristin-
dómsins em framar öllu öðm hin einstœða staðreynd: Jesús Kristur. Hann
er sú mikla forsenda, sem allar niðurstöður kristindómsins byggjast á,
hvort heldur er litið á hann sem þekkingaratriði, guðssamfélag eða
siðgæðishugsjón.
14