Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Síða 28

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Síða 28
Bjöm Magnússon athugasemd, og sumpart í þeim ritum Nýja testamentisins, sem yngri eru en Pálsbréfin eða óháð þeim. Mun ég sérstaklega taka til athugunar í næstu grein kristfræði Jóhannesarritanna, en minnast hér á nokkur önnur atriði, sem taka að gera vart við sig. Verður þá fyrst fyrir kenningin um meyjarfæðinguna svo nefndu. í æskufrásögum Matteusar og Lúkasar kemur fram sú skoðun, sem skýring á heitinu: sonur Guðs, að Jesús hafi engan mannlegan föður átt, heldur verið getinn af heilögum anda (Mt. 1,18.20, Lk. 1,35). Biblíufræðingar telja þessar frásögur vera af yngri rótum runnar en meginheimildir guðspjallanna, og ekki er nein merki þessarar skoðunar að finna í Markúsarguðspjalli, né heldur hjá Páli eða Jóhannesi. Ekki sjást heldur nein merki um hana annars staðar í þessum guðspjöllum en í æsku- frásögunum. Hliðstæðu þessarar kenningar má finna í ýmsum heiðnum hugmyndum um syni guðanna, sérstaklega voru þjóðhöfðingjarnir taldir meðal þeirra, eins og í egypskum trúarbrögðum og víðar. Nánari skyld- leika má fínna í ritum Ffíós, (De cherubim, 48-52, cit. RGG. 1. 1605) og í kenningu Páls, að ísak væri fæddur á andlegan hátt (Gal. 4,29). Gegn þessari skoðun mælir auk hins framantalda það, að öll guðspjöllin tala hiklaust um Jósef sem föður Jesú, og bæði Matteus og Lúkas rekja ætt Jesú ekki til Maríu, heldur til Jósefs. Hér virðist helst vera að verki við- leitni til að skýra guðssonarheitið út frá þekktum hugmyndum í umhverfi kristindómsins á fyrstu áratugum hans. Það er byrjandi skýringarviðleitni á „háspekilegu sambandi föðurins og sonarins” (Moffatt, bls. 137). Þá má minna á það, að getið er um það að Jesús hafi stigið niður í dauðraríkið til að prédika þar. Aðalstaðurinn fyrir þessu er í I. Péturs- bréfi 3,19 og 4,6 en ef til vill má finna vott þessa í Efesusbréfi 4,9. Ahrifaríkari er sú útfærsla á frásögunum um upprisu Jesú, sem í prédikun fyrstu postulannna og Páls var eingöngu talað um sem birtingu Jesú fyrir lærisveinunum eftir dauða hans, að hann hafi risið upp í hinum sama líkama sem lagður var í gröfina, og því hafi gröfín verið tóm (Mk. 16 og hliðst.). Ekki er hægt að fullyrða neitt um það, hvenær þessi kenning hafi orðið til, og víst er það, að hún kemur fram í frásögum allra guðspjallanna af þessum atburði, og bendir það á, að hún hafi snemma verið höfð fyrir satt. En vel getur hún verið tilraun til að skýra undur upprisunnar fyrir þeim, sem ekki gátu hugsað sér líf öðruvísi en tengt við hinn jarðneska líkama. Náskyld þessari kenningu um upprisuna er hugmyndin um líkamlega himnaför Jesú. Drög til hennar er að finna í Lúkasarguðspjall 24,50nn. og í Postulasögunni 1,9.-11. Raunar er texti Lúkasar um þetta mjög óviss, og því vafasamt, hvort í þeirri frásögn, sem þar er, hafi upprunalega verið nokkur átylla fyrir því, að tala um líkamlega himnaför. En um það leyti, sem þessi rit voru fullmótuð, virðist þessi hugmynd hafa verið orðin all-skýr. Um uppruna hennar má eflaust segja svipað og hér hefur verið sagt um upprisu jarðlíkamans, og séu þær báðar til orðnar í líkingu við eldri sagnir um svipaða atburði. 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.