Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 39
Sérkenni kristindómsins
II. KRISTINDÓMURINN SEM ÞEKKING
Samkvæmt því, sem áður er sagt um efnisskiptingu, mun nú fyrst verða
litið á þau atriði í boðskap Jesú sem fela í sér þekkingu á tilverunni,
höfundi hennar, stjórn hennar og tilgangi, og hvernig sú þekking hefur
mótast og þróast gegn um aldirnar. Öll trúarbrögð fela í sér nokkra
þekkingu, og í kristindómnum er að finna ákveðnar, og að sumu leyti
nýjar, hugmyndir, sem allt annað byggist á. Grundvallandi er þar fyrst og
fremst kenningin um Guð, eins og raunar öll trúarbrögð byggjast á
guðshugmyndinni, eða í hennar stað á heimsskoðuninni (Búddhismi).
Fyrst mun ég því snúa mér að kristilegu guðshugmyndinni.
1. Guð, faðir drottins vors Jesú Krists
Athugun mín á þessu efni mun verða þrískipt:
1) guðshugmynd Jesú,
2) stutt yfirlit yfir þróun guðshugmyndarinnar, og
3) inntak guðshugmyndarinnar, eins og hún liggur nú fyrir.
1) Guðshugmynd Jesú.
Jesús flutti nýja þekkingu um Guð, sem að sumu leyti gekk í aðra átt en
áður þekktist, og að sumu leyti lengra. „Nýtt var það, að hann lagði ríka
áherslu á vissar, mikilvægar trúarhugmyndir, sem voru þegar áður til að
einhverju leyti, en ekki höfðu fengið fullt gildi eða rökrétt samhengi, og
skipaði þeim í samræmda, skýra heildarskoðun, en felldi burt önnur
atriði, sem þangað til höfðu verið haldin mikilvæg og nauðsynleg í hinni
trúarlegu erfikenningu” (Wendt, bls. 285). Gagnvart hinum fjarlæga
Guði Gyðinga, sem ekki hafði nein afskipti af heiminum nema fyrir hönd
meðalgangara, og jafnvel mátti ekki nefna með nafni, boðaði hann hinn
nálœga föður, sem fylgist með hverju smáatriði, svo að jafnvel fellur ekki
einn spörr til jarðar án vitundar hans, og sem menn geta snúið sér beint
til með bænir sínar. Gagnvart hugmyndum hinnar grísku speki um
ópersónulega frumorsök flutti hann boðskapinn um hinn kærleiksríka
föður, sem lætur sér annt um hvert barn sitt, og bíður þess með opinn
föðurfaðminn, að það vilji nálgast sig. Gagnvart tvíhyggju boðaði hann
hinn eina, alvalda föður, sem ræður bæði lífi og dauða. „Hinn fjarlægi
Guð er orðinn nálægur. Sá Guð, sem stendur að baki öllum vexti og
verðandi, að baki lífi og dauða, að baki gleði og alvöru, er opinberaður
Guð, Guð, sem talar.” (Weinel, Theologie, bls. 143).
Þó er boðskapur Jesú ekki þannig, að hann setji fram ný fræðikerfi í
andstöðu við þessi, sem nefnd voru, eða önnur. Fjarri því. Heldur skín
guðsþekking hans út út orðum hans og lífi, alveg ósjálfrátt. Og ekki
37