Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 79

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 79
Sérkenni kristindómsins einni saman. Er þar trú á Guð skilin sem sannfæring um það að Guð sé til, líkt og í Hebreabréfinu „Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel, en illu andarnir trúa því líka og skelfast.“ „Trúin er ónýt án verkanna“ (2,19n). Þannig má sjá í Nýja testamentinu vaxandi stefnu í þá átt, að skilja orðið trú þannig, að það tákni samsinningu vissra hluta, sem ekki verða sannaðir, eða þeirra sögulegu staðreynda, sem kristindómurinn byggist á. Þetta er mjög eðlileg þróun, þegar litið er til útbreiðslu kristninnar meðal þjóðanna. Fyrst í stað var það talið sérkenni kristinnar trúar, að trúa því að Jesús væri Messías. Þar til heyrði og, að trúa því, að hann hafi risið upp, og væri upphafinn í dýrð hjá Guði. Hefur sú þróun áður verið rakin í sambandi við kristinfræðina. Gagnvart heiðnum mönnum þurfti, þegar kristniboð hófust meðal þeirra, að halda fram auk þess trúnni á einn Guð, skapara himins og jarðar (Post. 17.22nn). Og þannig má telja áfram hvert atriðið af öðru, og má sjá þau í hinum fornu játningum kirkjunnar, sem voru teknar saman smátt og smátt til að halda fram hinni réttu trú gegn villutrúarmönnum. Byrjun þessarar starfsemi má sjá þegar í hirðisbréfunum, þar sem talað er um hina heilnæmu kenningu, (Tím. 1,10; II. Tím. 4,3; Tít. 1,9), að alast við orð trúarinnar og góðu kenningarinnar (I. Tím 4,6) og varað við villukennendum, sem ganga af trúnni (I. Tím. 4,1). Eftir því sem tímar líða fram verður þessi stefna sterkari, og verður yfirgnæfandi þegar kenning kirkjunnar er orðin fastmótuð í ákveðnar játningar. Er þá trúin dæmd eftir trúarinnihaldinu, þeim sannindum, sem trúað er. Hún er fyrst og fremst skynsemisatriði, og að nokkru leyti viljaatriði, en sjálf trúarkenndin, tilfinningin fyrir hinu leyndardómsfulla, háleita og heilaga hverfur í skuggann (Fides quae creditur). Þannig verður þróunin um alla hina guðfræðilegu skoðun á trúnni. Má færa til ummæli nokkurra hinna helstu stórmenna kirkjunnar því til staðfestu. Ágústínus talar um trúna sem fullvissu um hið óséða, sem öll samskipti mannanna verði að byggjast á. Þó telur hann skilninginn hærra stig en trúna (si non potes intelligere, crede, ut intelligas, sermo, 118,2, cit. RGG. 1209). Anselmus heldur áfram í sömu átt, er hann talar um, að beygja sig undir valdboð opinberunarinnar, og segist trúa, til þess að hann skilji. Og það er raunar líkur skilningur á trúnni, sem valdboði um það, sem ekki verður skilið án hennar, sem felst í hinum þverstæðu orðum Tertullíanusar: „proxus credibile est, quia ineptum est,“ og orðunum, sem af þeim eru leidd: „Credo, quia absurdum.“ Enn lengra er þessi stefna komin, þar sem menn trúa fyrir valdboð kirkjunnar, því sem kirkjan telur rétt, jafnvel þótt þá skortí sjálfa þekkingu á því, hvað sú trú felur í sér (fides implicita). I þá átt benda þegar orð Ágústínusar: „Evangelio non crederam, nisi me catholicae ecclesiae commoveret auctoritas“ (Contra epist. Manich. 5,6, cit. RGG). Síðar varð það viðurkennd kirkjukenning, og framkvæmd þannig, að kirkjuþingin samþykktu, hver væru atriði hinnar réttu trúar, og náði þessi kenning hámarki í samþykkt 77
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.