Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 96

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 96
Bjöm Magnússon í boðskap Jesú um guðsríkið er það nýtt, „að hann útilokar gjörsamlega úr hinni æðstu trúarlegu hjálpræðishugsjón þjóðernislegar og stjórnmála- legar vonir þjóðar sinnar: ekki að hann hafnaði þeim þjóðernislegum tilraunum og vonum, sem stefndu aðeins að ytra valdi og dýrð hinnar útvöldu þjóðar, heldur að hann hratt brott þeim þjóðernisvonum, sem tengdu stjórnarfarslegt frelsi og upphafningu ísraelsþjóðarinnar við sæluástand á sviði trúarlífs og siðgæðis” (Wendt, bls. 286). „Guðsríkið er guðveldi að sönnu, en veldi Guðs í hjörtum einstaklinganna, það er guð sjálfur í mœtti sínum" (Harnack, Krd. 49). 2) Skýringar á guðsríkinu Það er eðlilegt um svo mikilsverðan þátt í boðskap Jesú eins og guðsríkisboðskapinn, að fram hafi komið ýmsar skýringar á því, í hverju þetta guðsríki væri fólgið, ekki síst með tilliti til þess, að ummæli Jesú sjálfs um ríkið eru eins fjölbreytt eins og sýnt hefur verið. Hefur líka sú orðið raunin á, að á ýmsum tímum hefur verið lögð mismunandi áhersla á hin ýmsu sjónarmið, og þannig komið fram mismunandi skilningur á guðsríkisboðskapnum. Má skifta þeim skýringum í fjóra aðalflokka, þótt vitanlega séu fleiri afbrigði til. Verður hér fyrst athugað hið eschatologiska sjónarmið, að guðsríkið birtist við lok veraldar, síðan sá skilningur, að kirkjan sé guðsríkið, því næst sá skilningur, sem sér í guðsríkisboðskap Jesú félagslega hugsjón, og loks hið siðferðilega sjónarmið. a) Eschatologiskur skilningur á guðsríkinu Margir fræðimenn halda því fram, að boðskapur Jesú hafi allur verið litaður af vonum þjóðar hans um nálægan heimsendi og dóm, með endumýjun veldis Guðs á jörðunni (Schweitzer, J. Weiss, Baldensperger o.fl). Eigi það ekki síst við um guðsríkið, sem sé einmitt uppfylling þessara vona. Aðrir eins og t.d. v. Dobschiitz (The Eschatology of the Gospels, bls. 150, cit. Moffatt, 84) halda fram „breyttum heims- slitahugmyndum” (transmuted eschatology), þannig að það, sem Gyðingar væntu á síðustu dögum kæmi fram þegar á dögum Jesú, og það, sem þeir væntu sem ytri breytingar gerist hið innra með manninum. Sá skilningur virðist vera nær sanni. En hitt er engum efa bundið, að kristnir menn á fyrstu áratugunum eftir dauða Krists væntu skjótrar endurkomu hans til dóms og stofnsetningar hins nýja guðsríkis. Hefur verið vikið að þessu fyrr og verður því ekki rökrætt meira um það hér, en aðeins skal bent á nokkra staði, þar sem þessi hugmynd frumkristninnnar kemur í ljós í sambandi við guðsríkið. í Opinberunarbókinni er talað um ríki Guðs og hins smurða, og það allt í stíl opinberunarrita síðgyðingdómsins (11,15; 12,10). í Postula- sögunni 1,6 er talað um að endurreisa ríkið handa ísrael, og er þar að vísu tekið fram, að tíminn sé óviss, en samt skín út úr orðunum sú trú, að það sé nálægt, en í 14,22 er talað um, að gegnum margar þrengingar sé 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.