Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 123

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 123
Sérkenni kristindómsins þeirri spurningu, hvað bænin sé og að lokum athuga hana sérstaklega frá sjónarmiði samlífsins við Guð. a) Bœnarlíf Jesú og kenning hans um bænina Guðspjöllin geta alloft um það að Jesús hafi beðist fyrir. Er þess sérstaklega getið við ýmis mikilvæg atvik í lífi hans, eins og skírnina (Lk. 3,21), áður en hann valdi postulana, er hann var alla nóttina á bæn til Guðs, Lk. 6,12), áður en hann sagði lærisveinunum ífá því að hann væri Messías og fyrir ummyndunina á fjallinu (Lk. 9,18, 28), í grasgarðinum á undan handtökunni og á krossinum (Mk. 14,35n og hliðst) og á krossinum (Mk. 15,34, Lk. 23,34.46). Þá er og skýrt frá því, að hann hafi beðist fyrir áður en hann framdi kraftaverk (Mk. 7,34, Jóh. ll,41nn) eða eftir þau (Lk. 5,16). Er sérstaklega merkileg í því sambandi frásögnin í 1. kafla Markúsarguðspjalls, þar sem sagt er frá starfsdegi Jesú í Kapernaum, og hvemig hann fór árla næsta morgun, löngu fyrir dögun á óbyggðan stað og baðst fyrir (v.35). Er þar glögg mynd af því, hvernig Jesús sótti sér í bæninni endurnæringu eftir erfiðan starfsdag og nýtt þrek til að hefja starf á nýjum degi. Er þess víðar getið að hann hafi verið á bæn, helst á óbyggðum stöðum, þar sem hann hafði fullkomið næði (Mk. 6,46, Lk. 5,16, 6,12). Er svo að sjá sem hann hafi alltaf öðm hverju leitað einveru til að biðja, og halda þannig stöðugt vakandi sambandi sínu við hina guðlegu máttarlind. Þá er og sagt frá því, að Jesús hafi beðið fyrir öðrum mönnum (Lk. 22,32, 23,34) og menn færðu honum börn til þess að hann skyldi leggja, hendur yfir þau og biðja (Mt. 19,13). Einnig blessaði hann brauðið og fiskana (Mk. 6,41, 8,6 og hliðst. Mk. 14.22 og hliðst, sbr. Lk. 24,35). Þá er enn ógetið lofgerðarinnar í Mt. ll,25n, Lk. 10,21). Þessi dæmi, sem þó em ekki tæmandi, nægja til að sýna, að Jesús baðst fyrir að jafnaði, og sérstaklega þegar hann átti eitthvað mikilvægt fyrir höndum eða var staddur í raunum. Þau sýna það að bænin var honum ómissandi uppspretta kraftar og hvíldar, sem hann leitaði jafnan til. Bænin var lífæð hins andlega lífs hans og orkugjafi hans til miskunnarverka. Þetta verður enn ljósara, þegar litið er til orða Jesú um bænina. En þau eru mörg, því að hann hvatti menn þráfaldlega til bænar. Hann kennir þeim hvemig þeir eigi að biðja, með því að kenna þeim bænina: Faðir vor (Mt. 6,9-13, Lk. 11.1-4). Hann hvetur til að vaka og biðja (Mk. 14,38, Lk. 21,36), biðja án þess að þreytast (Lk. 18,lnn, 11,5-8) og kvað þá ekki mundu bregðast gjöfina (Mt. 7,7-11 = Lk. 11,9-13), þó er trúin sumstaðar skilyrði bænheyrslunnar (Mk. 11,24 og hliðst) eða það, að menn biðji saman (Mt. 18,19). Bænin um fyrirgefningu er bundin því skilyrði, að maður vilji sjálfur fyrirgefa (Mt. 6,12, sbr. vv,14n, Mk. 11,25). Þessi dæmi sýna að Jesús telur kraft bænarinnar mikinn, jafnvel undra- mikinn. Orð hans um mátt bænarinnar em hliðstæð orðum hans um mátt trúarinnar: „Sá getur allt, sem trúna hefur” (Mk. 9,23, sbr. ll,22n og 121
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.