Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 154

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 154
Bjöm Magnússon föður, heldur er honum það hin æðsta nautn, „matur og drykkur”, eins og Jesús komst eitt sinn að orði um það. „Vér getum aðeins verið fullkomlega frjáls og fullkomlega „náttúrleg” í þátttöku vorri í hinum líkamlegu nautnum, ef andi vor finnur sitt sanna heimkynni í hinu yfirnáttúrlega” (Barry, bls. 193). „Það virðist vera lögmál á sviði siðgæðisins, að því náttúrlega hættir við að verða ónáttúrleg, nema það sé endurleyst af hinu yfirnáttúrlega” (ibid. bls. 59). Þetta „fullkomna lögmál frelsisins” kemur glöggt í ljós í afstöðu mannsins gagnvart böli og þjáningum. Hin eina leið tíl að láta ekki bugast af hinu illa í heiminum, til að geta borið mótlætí og þjáningar, án þess að þjást undir þeim sem kveljandi óréttlæti og böli, er að mæta þeim samkvæmt hinu nýja mati á gildi allra hluta, ekki sem refsingu eða ranglátri harðneskju ósveigjanlegra örlaga, heldur sem gjöf himneska föðurins, þolraun, sem hann leggur fyrir mann, manndómsraun, er leiða skuli í ljós það manngildi, sem hver hefur yfir að búa. Sá, sem það gerir, stendur algjörlega frjáls gagnvart þeim, lætur ekki bugast, heldur andæfir gegn þeim eftir því sem best er í eðli hans. Hugrekki og karlmennska í raunum er eitt einkenni þeirra, sem hafa lært að samlaga vilja sinn guðsviljanum, hreinleiki þeirrar sálar, sem treystir engu í fátækt sinni, nema hinum alvalda kærleika Guðs. Hin sama verður raunin í viðskiptunum gegn persónulegum mótstöðumönnum. Orðin um að rísa ekki gegn meingerðamanninum, heldur jafnvel gera gott umfram kröfur, þeim sem valda manni tjóni, eru leiðbeining um það, hvernig menn geti verið frjálsir gagnvart slíkum mönnum. Með því einu, að svara þeim af kærleika, eins og hinu besta í oss er eiginlegt, hvernig sem þeir koma fram við oss, sýnum vér oss alfrjáls í breytni vorri gagnvart þeim, og óháð breytni þeirra um vort eigið andsvar. „Láttu ekki framkomu þína stjórnast af afstöðu hins mannsins," sagði Jesús, þegar hann bað oss að snúa við hinni kinninni. Láttu ekki verknað hans ákveða hvernig þú skalt breyta, vertu alltaf knúinn af ósigrandi góðvild, hvað sem hann gerir. Láttu ákveðast innan frá. Þú ert ekki þræll duttlunga annarra og viðhorfa þeirra” (Jones: Christ of the Mount, bls. 151). Það er siðgæði innri yfirburða, sem þannig svarar mótgerðum, siðgæði frelsisins á sviði persónulegra viðskipta mannanna. Það mætti nú ætla af hinu framansagða, að siðgæði frelsisins væri hið auðveldasta í framkvæmd, þar sem það er ekki fólgið í öðru en því, að láta hið sannasta og besta í sér njóta sín. En sá, sem svo kynni að hugsa, hugsar ekki djúpt. Því að þetta er einmitt hið erfiðasta af öllu, fyrir manninn, sem jafnframt því að vera barn himneska föðurins er þræll syndarinnar. Það er svo erfitt, að það er ógerlegt manninum af eigin styrkleika einum (Hér kemur til greina það, sem áður er sagt um hluttöku náðar Guðs og verkanir anda hans í helgun mannsins). Þetta er það, sem skilur kristindóminn frá trúlausum heimspekikerfum eða húmanisma. Jesús var enginn veiklingur, sem lét undan kröfum hins lægra eðlis mannsins eða ýtti undir værukærð og makindaþrá. Það eru fyllilega 152
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.