Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 179

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 179
Sérkenni kristindómsins manninum, og krefst útrásar í félagsskap bræðra hans og systra. Þar með er ekki sagt, að ekki skuli vanda til hans eftir föngum, slíkt verður sjálfkrafa, þar sem menn finna að þeir fara með sitt helgasta málefni, en hið ytra má aldrei kefja eða fela andann, sem inni fyrir býr. b) Frjáls iðkun trúarinnar Sú frjálsa iðkun trúarinnar, sem kemur til greina í þessu sambandi sem trúarlífsboðun, er eingöngu sameiginlegar trúariðkanir, sem menn hafa um hönd af frjálsri þörf, án þess að um skipulega safnaðarstarfsemi sé að ræða, eins og í guðsþjónustum. Um hana gildir annars það sama sem sagt hefur verið um guðsþjónustuna, að til þess að þar sé um að ræða æfingu og styrkingu í trúarsamlífinu við Guð, veltur allt á því, að það sem, um hönd er haft, sé sprottið upp úr hreinni þörf hjartans, og hvergi sé rúm fyrir blekkingu og hræsni. Þessa á að vísu að vera auðgættara þegar um er að ræða frjálsa iðkun trúarlífsins, þar sem ekki er um nein fyrirfram ákveðin form að ræða, en þó er nauðsyn að vera vel á verði, því mjög hættir slíkum samkomum við að stirðna í sama formi og þær hafa einu sinni fengið á sig, þótt ekki sé það fest á pappír, ef ekki er lifandi andi fyrir hendi til að blása stöðugt í þær nýju lífi. Þannig er vitanlega guðsþjónustuform kirkjunnar upprunalega til orðið, því að í byrjun var öll sameiginleg trúariðkun kristinna mann frjáls, þótt áhrif frá gyðingdómnum hafi vitanlega átt sinn þátt í því að móta það form, er síðan festist, og hefur aðeins tekið hægum breytingum gegnum aldirnar. Sé þess gætt, að láta slíkar guðræknissamkomur aldrei tapa því lífi, sem upphaflega hrindir þeim af stað (sé ekki um hreina hóphræsni að ræða), þá geta þær haft ómetanlega mikið gildi sem skóli í kristilegu trúarlífi. Er sérstaklega æskilegt að presturinn geti myndað með söfnuðinum slíkan „innri hring”, er myndi kjarna safnaðarins, en aðeins má þar ekki komast að nein útilokunarstefna, heldur verður öllum að vera heimil þátttaka í honum, sem þess óska, svo kraftur trúarinnar megi útbreiðast til sem flestra. Og forðast verður einnig, að sá hópur líti á sig sem meiri eða betri guðsbörn en aðra safnaðarlimi, enda mundi allur hroki og sjálf- byrgingsskapur gjörsamlega ónýta hinn sanna tilgang slíkrar starfsemi: að komast í samband við hinn himneska föður, því að það veitist ekki öðrum en þeim, sem eru fátækir í anda og hjartahreinir. En fyrir utan slíka hópa, meira eða minna fasta og með meira eða minna reglubundnum fundum, koma hér ekki síður til greina tilfallandi mót, „þar sem tveir eða þrír eru saman komnir í nafni Krists”, og þeir eiga sameiginlegar bænastundir eða hugleiðslu. Slíkar stundir geta verið á við hina bestu prédikun, og jafnvel ógleymanlegar. Getur presturinn oft fengið tilefni til þess, er hann sinnir sálgæslustörfum sínum, og þarf þar ekki alltaf að vera um að ræða bæn í orðum, því stundum er þögnin mælskari en nokkur orð. Og hin sameiginlega reynsla, sem fengin er af slíkum stundum, er hin besta boðun trúarinnar, sem hugsast getur, því að þar er trúin sjálf að verki, og ber sér vitni, sjálfkrafa og tilgerðarlaust, 12 177
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.