Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 180

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 180
Bjöm Magnússon sem síðar getur orðið að sáðkorni trúarinnar til annarra manna, og borið margfalda ávöxtu. Þannig mun oftast vera, ef í einlægni er starfað, auðmýkt og hreinskilni. Hver eru rök fyrir þessari aðferð, að dómi reynslunnar? Það er ekki hægt að sanna tilveru trúarlífsins, frekar en það er hægt að sanna lífið sjálft. Fyrir þeim, sem ekki hafa reynt það, er það heimska og blekking. Fyrir þeim, sem reynt hafa, er það hinn sjálfsagðasti hlutur, sem til er, og þeim dettur ekki í hug að efast um, frekar en lífið sjálft. Það verður ekki sannað né kennt, heldur lifað (Sbr. Pfenningsdorf: Prakt. Theo. bls 272). Og að það líf megi glæða í mönnunum, byggist á því, að í þeim öllum er neisti þess, sem finnur til skyldleika síns við hið guðlega, þegar hann kemst í snertingu við það. Vakning trúarlífsins er því viljaatriði, og hefur í för með sér breytta afstöðu mannsins, ekki aðeins til Guðs, heldur og til annarra manna. „Verkefnið er að láta renna saman ósvikna trú og víðfeðma mannelsku; að halda mönnum í hinu nánasta samfélagi við Guð og við náunga sína: að fylla stundir þess lífs, sem nú er, með krafti þess lífs, sem engan enda tekur.” (Gladden, bls. 120). Þá er guðsríkið komið með krafti. Einnig það má hvetja, og til þess eru áhrifaríkust sjálf verk guðsríkisins. Þá boðun guðsríkisins verður minnst á í næstu grein. 3) Boðun guðsríkisins Jesús hóf starfsemi sína á því að boða nálægð guðsríkis, og þegar menn komu til hans og vildu fylgja honum, þá sagði hann við þá: Far þú og boða guðsríki. 011'kristindómsboðun er í rauninni guðsríkisboðun, því bæði boðun orðsins og boðun trúarinnar eiga að stuðla að því að guðsríki komi. En guðríki er raunar fólgið í kristilegu lífi, sem starfar í kærleika. Það er guðssamfélagið verkandi meðal bræðranna. Þess vegna er réttmætt að tala, eins og hér er gert, um boðun guðsríkisins í þrengri merkingu, sem boðun í verki, framkvæmd þessa bræðralags í samfélagi manna. Slík var líka aðferð Jesú og fyrstu lærisveina hans. Ekkert hefði verið fjær honum en teóretiskar kenningar um guðsríkið eða það guðssamfélag, sem ekki lýsti sér í starfandi bróðurelsku. Enginn boðun kristindómsins getur verið áhrifaríkari en að leiða hann inn í hið daglega líf mannana. Sú boðun kristindómsins, sem á að gæta allra sérkenna hans jafnt, verður því alltaf öðrum þræði að vera boðun í verki, tilraun til að gera guðsríkið að veruleika meðal manna. „Kristindómurinn er ekki aðeins fyrir sunnudaga og bænassamkomur, fyrir svefnherbergi og dánarbeð; hann er fyrir búðir og afgreiðslustaði, skrifstofur og verksmiðjur, eldhús og setustofu, torg og ráðhús. Nema hann hafi vald til að stjórna öllum þessum margbreytilegu störfum manna er hann minna en ekkert og hégómi; því fyrr sem heimurinn er laus við hann, því betra” (Gladden, bls. 113). Hér er ríkt kveðið að orði, en þó ekki um of, því sú starfsemi, er vill umbæta allt í orði, en sýnir enga viðleitni á borði, er verri en ekkert, og slíka menn, sem þannig fóru að, kallaði Jesús hræsnara. Kirkjan, með sinn háleita boðskap um bræðrasamfélag manna, hefur því 178
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.