Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 181

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 181
Sérkenni kristindómsins ríka skyldu til að sýna framkvæmd þess í verki, því annars á hún á hættu, að spilla þeim góða málstað, sem henni er trúað fyrir. Þess er líka skylt að geta, að mikið hefur verið unnið í þessa átt að ýmsum kristilegum stofnunum og samtökum, ekki síst á síðustu áratugum. Vaxandi skilningur fyrir því, að kristindómurinn hljóti að verka á samfélag mannanna, og breyta því eftir hugsjón sinni, hefur hrundið af stað ýmsum hreyfingum í þá átt. Eru sumar þeirra í beinu sambandi við kirkjur landanna, sem einn þáttur starfsemi þeirra; má þar til nefna í nágrannalöndum vorum sem hinar fremstu kirkjuherinn enska og Svenska kyrkans diakonistyrelse. En margar hafa þær einnig verið án beins sambands við hina almennu kirkju, svo sem hjálpræðisherinn, heima- trúboðið o.fl. Þessi starfsemi hefur sýnt, að kristindómurinn hefur stórkostlegt hlutverk að vinna í félagsmálum þjóðanna, enda þótt stundum hafi einhliða trúarskoðanir spillt fyrir þessari starfsemi, þar sem þröngsýnir sérflokkar hafa átt í hlut. En þeir hafa oft orðið á undan hinni almennu kirkju að hefjast handa, og hefur það stundum orðið til að torvelda hliðstæða guðsríkisboðun á almennum, kristilegum grundvelli. Sem sérstaklega áhrifaríka má í þessu sambandi nefna starfsemi Japanans Kagawa, sem hefur unnið stórkostlegt starf að endurbótum á kjörum þeirra, sem verst voru staddir með þjóð hans. Allt er það knúið fram af brennandi, kristilegum anda, og hversu honum er það ljóst, að alhliða boðun fagnaðarerindisins haldist í hendur, sýnir guðsríkishreyfing hans, sem hann hefur hrundið af stað um allan Japan, til að vinna að alhliða kristnun allra stétta þjóðarinnar. Hér eru ekki tök á að nefna fleiri slík dæmi, enda gerist þess ekki þörf. Málið er augljóst, enda þótt stundum heyrist raddir um það, að kirkjan eigi ekki að skipta sér af veraldlegum málum. Slíkar raddir hljóta alltaf að vera sprottnar af misskilningi á eðli fagnaðarerindisins, og sú stefna hlýtur alltaf að leiða til dauða fyrir alla sanna kristindómsboðun. Kristindómnum er ekkert mannlegt óviðkomandi. Það hefur verið rakið í einstökum atriðum hér að framan í þessu máli, hvernig guðsríkið felur í sér umsköpun á félagslífi manna, bræðralag, þjónustu við sjúka, bágstadda og snauða, og þetta allt ekki aðeins á þann hátt, að milda það tjón, sem þegar er orðið, heldur miklu fremur að koma í veg fyrir, að slíkt eigi sér stað, með því að berjast gegn því ástandi, sem skapar mönnum slíkar nauðir. Það er sköpun guðsríkisins á meðal vor, sem er hinsti tilgangur alls kristniboðs, og það verður ekki framkvæmt annan veg en þann, að umbreyta hinu ytra fyrirkomulagi mannfélagsins. Vitanlega verður sú breyting að vera róttæk, ná inn í hugarþel einstak- linganna, því annars er hún haldlaus. En jafnskjótt og tveir eða þrír einstaklingar hafa öðlast hugarfar guðsríkisins, þá er skylda þeirra að berjast fyrir því að guðsríkið verði að veruleika. Þeir geta ekki annað. Þörfin brennur inni í beinum þeirra, og þeir þola ekki annað en starfa. Og það starf á að vera róttækt: Grípa á uppsprettu meinsemdanna. Bráð hjálp til þeirra, sem í nauð eru reknir, er sjálfsögð, en hún knýr jafnframt til starfa að því, að fyrirbyggja að aðrir lendi í sömu nauð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.