Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Síða 68
66
MÚLAÞING
öðru leyti var útloftið óskipt og þar voru geymdar kistur stórar, koffort
og kassar með ýmsum hlutum, svo sem fatnaði og mörgu fleiru. Næst
uppgöngu voru dyr að eystra herbergi suðurenda loftsins. Þar var eitt
lausarúm við austurvegg undir súðinni. Til vesturs frá pallsnöf voru
dyr að vesturherbergi í suðurenda. Það var mun stærra en það eystra,
og voru þar þrjú fastarúm, tvö af þeim undir súðinni að vestan. I
þessum herbergjum voru oft koffort eða kommóður, sem jafnan voru
eign þess eða þeirra sem þar höfðu svefnstað. Milliþiljur þessara her-
bergja voru hálftommu flettingar, heflaðir en óplægðir. Á milli vestur-
herbergis og útloftsins var kvisturinn. Hann var afþiljaður með panel-
borðum, og á honum var eitt lausarúm, sem jafnan var ætlað gestum.
Porthæð frammihúsloftsins var um 80 sm.
Austur úr áðurnefndum stofugangi tóku við göng er lágu til austurs,
allt til baðstofu - mjög löng, þar sem baðstofan var austast húsa í
bæjarþorpinu. Þessi göng - sem og önnur göng bæjarins, voru hlaðin
saman að ofan, en ekki reft. Niður í göngin úr stofuganginum voru
tvö allhá þrep, aðskilin með stórum steini - hellulaga, vel sléttum að
ofan. Innarlega í göngunum voru tvær hurðir með stuttu millibili,
svokallaðar „skellihurðir“ eða draghurðir, sem opnuðust mótvægis til
vinstri þá inn var gengið. Tvær stigarimar voru í enda ganganna upp
á baðstofugólfið. Baðstofuhurðin opnaðist inn til hægri og féll að ská-
hólfi frá súð inn á gólfið, þá hún var lokuð. Baðstofudyrnar voru á
miðri vesturhlið baðstofunnar, sem var þrepbaðstofa, sjö rúmlengdir
að lengd og um tvær að breidd. Baðstofan var þrískipt, afþiljaðar tvær
rúmlengdir í hvorum enda, en miðbaðstofan því þrjár. Milliþiljur voru
af hálftommu flettingum úr rekatrjám, hefluðum en óplægðum, sömu-
leiðis veggþiljur í porthæð, sem var tæpar tvær álnir, svo og stafnar.
Gólfið var úr eins og kvarttommu borðum úr rekatrjám mjög breiðum
- sum allt að 15 þumlunga breið - en óplægð. Baðstofan var toppreist,
sperrur á hverja rúmlengd, langbönd þvert á sperrur og klætt á þau
með reisifjöl úr hefluðum, ófelldum rekaviðarborðum einnar tommu
þykkum. Þak var gert af hrísi næst klæðningu og síðan þakið með
þrem lögum af torfi með allþykkum myldingi undir ystu torfu, sem
svo varð grasi vaxin. Þetta þak var ólekt um áratugi. Á mæni voru
þrjár loft-túður, voru það timburstokkar sem náðu í gegnum þekjuna
og vel upp úr henni um 5x4 þumlungar að innanmáli. í baðstofunni
voru 13 rúm, eitt á hverju stafgólfi við báðar hliðar - uppgangan var
í einu að vestan. Öll voru rúmin fastarúm, vel breið - ca. 1 metri. Á
baðstofunni voru 7 einnar rúðu gluggar, rúðustærð nálægt 45 x 30