Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Síða 85
MÚLAÞING
83
hornið til Bessa og Þórunnar, og þar andast hún 19. nóv. 1841, 77 ára
að aldri.
Líkræða séra Benedikts Þórarinssonar yfir þessari konu - sem komst
farsællega gegnum þrengingar og smán á einu harðasta skeiði íslands-
sögunnar - er líklega týnd, en þó á Jófríður Magnúsdóttir ummæli sem
varðveist hafa vegna þess að Sigmundur tilfærir þau, vísu úr gömlum
sveitarbrag úr Fellum, ort meðan enn var of snemmt að gera um hana
eftirmæli:
Á Birnufelli hringa hrund
hefur búið lengi,
Jófríður með jafna lund,
jarðeigandi er þetta sprund.
Svolitlum eftirmála má bæta við þessa ævipunkta. Skrásetjari gapa-
stokksfrásagnarinnar af Jófríði, Sigmundur Long, var skyldur og með
sérstæðum hætti tengdur þessu Birnufellsfólki. Hann var sonur
Matthíasar Longssonar, eins og hreppsbækur nefna þennan son
Richards hins enska við Breiðuvíkurverslun í Reyðarfirði, og Jófríðar
Jónsdóttur sem var tökubarn á Birnufelli 1831. Þessi Jófríður var fædd
1816 og var systurdótturdóttir Jófríðar Magnúsdóttur. Jófríðar eru
aðeins þrjár tilgreindar í Ættum Austfirðinga, þessar tvær og hin þriðja,
dóttir Eiríks Magnússonar hálfbróður Jófríðar Magnúsdóttur. Ef til
vill hafa báðar verið skírðar í höfuðið á Jófríði á Birnufelli.
Jófríður Jónsdóttir giftist Matthíasi Long. Þau hófu búskap á jarð-
arhorni á Ekkjufelli, hrúguðu niður krökkum og flosnuðu upp. Sig-
mundur var fyrirmálsbarn þeirra og fór þá til vandalausra innan við
fermingaraldur, en foreldrarnir í Birnufell upp á framfærslutillag frá
Reyðarfjarðarhreppi. Matthías var bráðlaginn ástamaður og varð nú
það á að barna Kristbjörgu dóttur Magnúsar Bessasonar. Barnið var
drengur, fæddur 1855, skírður Kristinn og dó 1861 - hálfbróðir Sig-
mundar og sonardóttursonur Jófríðar Magnúsdóttur. Það nær víst ekk-
ert heiti yfir svona tengdir, en Kristbjörg giftist síðar Bjarna Andréssyni
frá Meðalnesi og sonur þeirra var Magnús skáld í Selkirk í Kanada.