Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Síða 86
ÁRMANN HALLDÓRSSON
Héraðsvísa Stefáns Ólafssonar og fleira
/
í ljóðasafni Stefáns Ólafssonar skálds og prests í Vallanesi, því sem
Bókmenntafélagið gaf út í tveimur bindum í Kaupmannahöfn 1885 og
1886 í umsjá Jón Þorkelssonar, er eftirfarandi vísa undir fyrirsögninni
Harðindi, og í greinargerð sem henni fylgir er þess getið, að í einu
handriti þeirra sem útgáfan er byggð á, nefnist vísan Harðindin í
Fljótsdalshéraði. Vísan er þannig:
Jökuldals byggðin bleika,
byljum stríðum vön Hlíðin,
kringvöfð vötnum Tunga,
veitug Utmannasveitin,
þjóðkunn þingin Eiða,
þröng sund Skriðdals grundar,
Völlur, Fljótsdalur, Fellin,
fullt er þar allt af sulti.
í greinargerðinni er getið orðamunar eftir uppskriftum: Jökulsár í
stað Jökuldals í fyrstu línu, bylja stríði í stað byljum stríðum í annarri
línu, kringum vöfð í stað kringvöfð í þriðju línu og sama lína vötnum
vöfð víðfræg Tunga, í sjöttu línu þröngt og grunda í stað þröng og
grundar, og að síðustu er þess getið að orðmyndin Völlur sé austfirsk
plebeiska (,,pleb.“), þ. e. almúgamál fyrir Vellir. Það síðastnefnda
kannast sjálfsagt ýmsir við enn, Völlurnar fyrir Vellirnir, og að fara
inn á „Völlu“ eða „Völlur“.
Þessa vísu kunna margir Héraðsmenn enn í dag, skilja á einn veg
sveitanöfnin, en ef til vill sum einkennisorð þeirra, sem skáldið lætur
fylgja, á mismunandi vegu.