Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Page 150
148
MÚLAÞING
Svanberg með 7 fiskimenn (meðal þeirra sonur hans og alnafni 16 ára
gamall.1
Ekkert hús er autt á Seyðisfirði. í Sbmmeshúsi býr Herman Herman-
sen, í Nagallshúsi Nicolai Halvorsen, og í Hodnahúsi búa sænsku hjónin
Hóll. í Svendsenshúsi halda Ola Davidsen og tvær íslenskar konur
skorsteininum rjúkandi. í Mandalhúsinu hefur Tobias Tbnnesen vet-
ursetu með konu og tvö börn. Jóhannes Nielsen skósmiður býr einn
eins og árið áður. Á Vestdalseyri er Ole Meisland eftirlitsmaður hjá
Olsen, og Mattias Aanensen hjá O. Waage. í lýsisbræðslu Ottós
Wathne býr Ivar Vesta.2
íslandsveiðarnar árið 1882 stunduðu 155 norsk skip með 79 nótabrúk
og 1590 manns, lítið eitt færri en árið áður. Samanlagður afraksturinn
var 65.000 tunnur síldar, aðeins 41 tunna á mann, rúmlega fimmtungur
þess sem var á mann 1880.3
í ár koma margir vonsviknir frá íslandi og hafa orðið fyrir miklu
fjárhagstjóni, segir í Karmsundsposten. Nokkrir hafa borið það mikið
úr býtum að þeir hafa fyrir útgjöldum, en aðeins mjög fáir hafa hagnast
vel. - í ár þarf ekki svo mikla veiði til að ferðin borgi sig, því á þessum
tímum eru greiddar 25 krónur fyrir tilslegna tunnu.4
Hans O. Sundfpr í Haugasundi hefur þetta ár gert út 5 skip til veiða
við ísland: jaktina „Aarvak“, galíasana „Ingeborg“, „Oscar“ og
„Victoria“ og gufuskipið „Stadt“. Hann seldi síld í Stokkhólmi og
tapaði alls kr. 1.577.65 á íslandsútgerð ársins.5
Aftur á móti gerir Kphler árið upp með 100 þúsund króna tapi.6
Allar nýju íslensku síldarútgerðirnar, sem keypt hafa dýrar nætur
og báta hafa orðið hart úti 1882. Það félag í Eyjafirði, sem best gekk,
fékk aðeins 60 tunnur síldar. Hluthafarnir urðu fyrir stórtapi. íslensk
blöð skrifuðu mikið um þessi vonbrigði. „Svipull er sjávarafli“ segja
þau. Aldrei má gleyma að taka hafíssumurin með í reikninginn.7
1 Manntal Hólmasóknar og Mjóafjaröar.
2 Manntal Dvergasteinssóknar.
3 N. F. T. 1883.
4 K.posten 7. nóv. 1882.
5 Skjöl Sundförs.
6 Danielsen.
7 Matthías Þórðarson bls. 104.