Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1993, Síða 34
32
MÚLAÞING
með sér töfrakraft sem í þeim höppum hljótast. Minnir þetta þá á annað
kvenheiti, sem að vísu var harla sjaldgæft, Ölrún, en kynni að hafa varð-
veist fremur í gerðinni Alrún. Hljóðvarpið a>ö verður væntanlega frekar
í Ölveig, af því að síðari hlutinn hefst á v.
En hyggjum betur að Ölveigu. Hvorki er nafnið að finna í Landnámu
né Sturlungu. En hvemig er það, komust ekki nöfn kvenna e.t.v. síður á
bækur en karla?
Árið 1703 var ein Ölveig á Islandi og sú í Þingeyjarsýslu, og tvær
voru þær 1801, báðar Þingeyingar. En 1845 hafði fjölgað í sex og var nú
jafnt skipt milli Þingeyjar- og Múlasýslna. Mátti þetta heita óbreytt
langa hríð. Nafnið Ölveig hefur, vegna misskilningshættu, átt erfitt. í
þjóðskrá 1989 er aðeins ein, Ölveig Ágústsdóttir Miðhúsum í Blöndu-
hlíð, fædd 1906.
IV.
Þess var áður getið, að fleirnefni væru enn nær því óþekkt meðal
Sunn-Mýlinga 1801. En fljótt þar á eftir tóku þeir myndarlega við sér að
innleiða þessa nýbreytni. Þeir voru þó að þessu leyti langt á eftir þeim
sem fúsastir voru til fleimefnanna, t.d. Eyfirðingum og Norð-Mýlingum,
en langt á undan Rangæingum og nágrönnum sínum í Skaftafellssýslu.
Þar í sýslum þumbuðust menn lengst við og voru að því leyti þjóðlegast-
ir.
Það er svona um og eftir 1830 sem fleirnefnin taka að ná sér verulega
á strik hérlendis. Árið 1855 voru um 2.5% karla fleirnefnd í Suður-
Múlasýslu og rétt rúmlega 4% kvenna. En ef við tökum t.d. Norður-
Múlasýslu til samanburðar, voru samsvarandi tölur þar 3.75 og rúmlega
10. En það áttu Sunn-Mýlingar sameiginlegt með Eyfirðingum og íbú-
um norðursýslunnar, að Anna var langoftast fyrra nafnið meðal
tvínefndra kvenna. Þegar hér var komið sögu, voru fleimefni, hvort
heldur meðal kvenna eða karla, innan við 1% í Skaftafells-, Rangár-
valla- og Árnessýslum. Rétt þó við markið í Árnessýslu.
Mér finnst skýrast að setja hér tæmandi skrá yfir fleirnefni í Suður-
Múlasýslu 1845 og láta þá sjást um leið heimili, kirkjusókn, aldur og
fæðingaramt. AA merkir þá austuramt o.s.frv.