Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1993, Síða 85
MÚLAÞING
83
Ámasonar var Björg Pétursdóttir, sýslumanns í Múlaþingi, Þorsteinsson-
ar. Síðari kona Vigfúsar í Ási var Guðríður Jónsdóttir frá Gilsá í Breið-
dal. Sonur þeirra var Björgvin, sýslumaður á Efrahvoli.
Systir Bjargar, Þórunn, var móðir Páls Benediktssonar á Gilsá í Breið-
dal. Var mikil vinátta með þeim frændum, Guttormi í Stöð og Páli á
Gilsá. Vigfús Guttormsson í Ási og Björg Stefánsdóttir áttu tvo sonu
sem upp komust, Guttorm prest í Stöð og Pál, cand. phil., bónda og rit-
stjóra á Hallormsstað.
Enn skal þess getið að Guttormur Pálsson í Vallanesi, afi Guttorms í
Stöð, átti Margrétu Vigfúsdóttur, prests á Valþjófsstað, Ormssonar. Af
Vigfúsi Ormssyni eru Þormarar komnir.
Það eru því engar ýkjur þótt sagt sé að í æðum okkar niðja Guttorms í
Stöð renni lítt mengað prestablóð þótt það kunni að þynnast með tíð og
tíma.
Guttormur Vigfússon ái okkar varð stúdent úr Lærða skólanum 1869
með annarri einkunn en bætti þar um með því að brautskrást úr Presta-
skólanum tveimur árum síðar með fyrstu einkunn. Hann vígðist til Ríp-
ur í Hegranesi 1872 en eftir tveggja ára setu þar, 1874, varð hann að-
stoðarprestur tengdaföður síns, Jóns Austmanns, í Saurbæ í Eyjafirði.
Aðstoðarprestsstarfið var einvörðungu biðtími þess að hann fengi að
þjóna veigamiklu prestakalli, sjálfs sín herra, og árið 1876 var honum
veitt Svalbarð í Þistilfirði og síðan Fjallaþing í eitt ár, 1881. Það var nýtt
prestakall með Víðihóls- og Möðrudalssóknum og lá hæst yfir sjó allra
prestakalla hér á landi. Auk þess þjónaði hann Presthólaprestakalli á
vestanverðri Melrakkasléttu sem aukaprestur árin 1876 og 1883. Gutt-
ormur var settur prófastur í Norður-Þingeyjarsýslu 1883 og skipaður í
embættið 1885.
Óhætt er að fullyrða að ár hans í Norður-Þingeyjarsýslu hafi mjög
reynt á þolrifin og veist honum erfið enda fór saman víðlent prestakall
og eindæma illt árferði. Dagbækur hans eru til vitnis um það.
Jón Austmann, tengdafaðir Guttorms, hafði orðið prestur í Stöð í
Stöðvarfirði árið 1881. Hann lést 1887 og þá bauðst tengdasyninum
tækifæri til að hyggja að breytingum, yfirgefa harðbýla sveit og sækja
um prestakall á syðri og hlýlegri slóðum. Guttormur varð prestur í Stöð
1888 og var nú kominn í hinsta stað prestsskapar síns. Hann varð síðasti
prestur í Stöð og þegar hann lét af starfi 1925 hafði hann 52 embættisár
að baki, flest allra þeirra sem þann stað sátu og þótt víðar væri leitað.
Guttormur dó 25. júní 1937 og hvílir í kirkjugarðinum í Stöð.