Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1993, Page 180
178
MULAÞING
Margrét Oddsdóttir hefur fengið goðorð og eignir í Njarðvfk í sinn
hlut þegar hún skildi við Þórð.
Mér er nær að halda að Ögmundur sneis hafi tekið saman við Margréti
þegar hann flúði á Jökuldalinn.
Þau hafa alið Þórarin Jónsson upp og frá Margréti ömmusystur sinni
hefur hann fengið goðorðið sem þó hefur verið eign Þorvarðar í Saurbæ.
Það skal fúslega játað að hér er lesið frjálslega í söguna, en þó finnst
mér sú tilgáta, að Ögmundur sneis hafi flutt til Margrétar Oddsdóttur
þegar hann hraktist að norðan, æ álitlegri eftir því sem ég skoða tilgát-
una betur.
Vopnfirsku goðorðin hafa komið í hlut Arnbjargar Oddsdóttur, þegar
arfi hefur verið skipt eftir Odd Gissurarson, þótt Teitur Oddsson hafi
farið með goðorðin á meðan hann lifði.
Þessi þrjú goðorð, goðorð Hofverja, Krossvíkinga og Njarðvíkinga
hafa komið í hlut Þórarinssona þegar deilan var gerð upp við Sæmund
Ormsson.
Þetta byggir á því að Þórarinn Jónsson hafi verið skilgetinn sonur Jóns
Sigmundssonar og seinni konu hans Halldóru Arnórsdóttur og þess
vegna albróðir Brands biskups.
Goðorð Hrafnkelsniðja.
Lúðvík Ingvarsson kýs að nefna goðorðið svo.19) Sörla Brodd-Helga-
sonar er getið á Valþjófsstöðum í Fljótsdal í Njálssögu201, Sörli var
tengdasonur Guðmundar ríka. Synir Sörla voru Einar og Broddi.
Næst er bónda og goðorðsmanns getið á Valþjófsstöðum svo að með
vissu sé, þegar þau búa þar Sigmundur Ormsson og Ambjörg Oddsdótt-
ir. Nokkrar líkur eru taldar á því að Oddur Gissurarson hafi búið á Val-
þjófsstöðum, það má rétt vera.
Þá eru fyrir því nokkrar líkur að faðir hans hafi verið Gissur Einars-
son, sem er talinn auk Sigmundar Þorgilssonar mestur höfðingi á Aust-
urlandi 1118.
Gissur gæti verið sonur Einars Sörlasonar. Nokkrar lrkur gætu einnig
verið fyrir því að Gissur hafi verið bróðir Magnúsar biskups, sonur Ein-
ars Magnússonar. Fyrri tilgátan er þó sennilegri.
Sörli Brodd-Helgason gæti hafa komist að goðorðinu og Valþjófsstað
19) Goðorð og goðorðsmenn Il.b. bls. 44.
20) Islensk fornrit Xll.b. Brennu-Njálssaga bls. 351.