Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Page 9
Múlaþing
Sveinn Bjarnasonf. l.febrúar 1864, d. 5. júlí 1937. Sigríður Arnadóttir f. 8. mars 1859, d. 12. maí 1927.
Bjuggu á Heykollsstöðum í Tungu, Árnastöðum og Neshjáleigu Loðmundarfirði og Húsavík í Borgarfirði.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga.
„Það bar til, að bát hvolfdi í Neslend-
ingu með nokkrum mönnum. Allir burgust
fljótt og vel á land, nema einn maður; komst
hann á kjöl. Það var Sveinn Bjarnason
frændi Páls og hjálparhella fyrsta árið á
Nesi. Þeir, sem komust á land, köstuðu
bandi til Sveins, þar sem hann var á kjöln-
um og drógu þeir hann þannig í land. Þetta
er gamanlaust tilfelli, og hörmulegt hefði
það verið, ef Sveinn hefði farizt frá ungum
börnum. Allir hafa sjálfsagt lofað guð, sem
maklegt var, og Páll eflaust líka, en það fer
eigi sögum af því. Hinsvegar kvað hann:
Sveinn með lagi komst á kjöl,
þeir köstuðu til hans bandi.
Drulluvotan dáltinn spöl
drógu þeir hann að landi.
Má það ljóst vera, að eigi hefur andi
Páls farið í þessu sömu leið og andi annarra
manna - og öllum þótt sinn andi betri.
A hinum fyrri dögum er Páll alltaf hepp-
inn með augnablikið í skáldskap sínum. Nú
hefur því þótt vera brugðið. Var það og svo,
að fljótt varð lítt ásamt með þeim frændum,
Páli og Sveini, í sambúðinni á Nesi,“ ...
Þarna mun atburðinum rétt lýst, og að
auki hefur Benedikt stökuna orðrétta eins
og hún hefur geymst í minni niðja Sveins
Bjarnasonar, en sá er hér heldur á penna er
sonarsonur hans.
Um Jón rauða veit ég það eitt að fróður
maður hefur tjáð mér að hann drukknaði á
vertíð undan Suðurnesjum. Varla hefur
Brimnesbóndi í Seyðisfirði verið þar á skipi
með honum.
7