Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Síða 66
Múlaþing
Séð yfir svœðið. Til vinstri við Pakkhúsið sést horn af bryggjunni með löndunarkrana og útstafn
frystigeymslunnar, til hœgri smábátahöfnin og hluti bogaskemmunnar. Ljósm. Jóhanna Lárusdóttir.
og geta þess að örskammt innan og ofan við
Pakkhúsið var grafin þró fyrir innvolsið,
slógið, sem notað var á sama hátt. En þetta
var fyrir mitt minni. (Aftur á móti, þegar
mér óx fiskur um hrygg, reiddi ég hausa og
dálka upp á tún. Þótti mér það fremur „virð-
ingarstaða“ og lét mig þá litlu varða þefjan
og maðk þegar því var að skipta. - Maðki
var algjörlega bægt frá húsum með röst af
salti fyrir dyrum).
Utgerð mótorbáts frá Brekku þarfnaðist
einnig stærra húsnæðis. Vilhjálmur og
Magnús höfðu gert sér inni á Selhellu
myndarlegt sjóhús af nýju timbri. Máttarviðir
voru kantskomir en klæðning úr ragborðum.
Loft undir súð, bárujám á þaki. Nú var þessu
húsi skipt í tvo jafna hluta og annar helming-
urinn fluttur út að Brekku og reistur þar,
áfastur Pakkhúsinu (Miðhúsinu) vestan-
verðu. Neðri hæðin, Beitingaskúrinn, var
óþiljuð innan og óskipt með gluggum á þrjá
vegu, uppi óskipt herbergi undir súð, þiljað
innan með panel, málað, gluggi á stafni -
móti vestri, stigi í NA-homi og hleri yfír upp-
göngunni, dyr inn á Miðhússloftið - þessi
viðbygging er 5x6,5 m að flatarmáli. Meira
þótti nú við þurfa. Var einnig byggt utan við
gamla Pakkhúsið sem þar með var orðið rétt-
nefnt Miðhús. Mun sú bygging hafa verið um
5x5 m og er ég ekki viss um hvort hún var
reist 1910. En þar var allur fiskur saltaður,
málsfiskur í stafla en „labri“ pækilsaltaður í
olíuföt, einnig umsaltað og svo blóðskorið
þegar kom að vöskun. Ekkert loft var í þess-
ari viðbyggingu sem nefnd var Salthús.
Næst er þess að geta að haustið 1922 þótti
nauðsynlegt að stækka Salthúsið, lengja það
og hækka. En breiddin mun frá upphafi verið
hafa eins og á Miðhúsinu. Eftir stækkun varð
flatarmál þessa húshluta 9,5x5 metrar. Þannig
var mál með vexti að á þessum misserum bjó
í Friðheimi með fjölskyldu sinni Þorsteinn
Tómasson úr Reykjavík, lærður skipasmiður.
Brekkubræður, Eljálmar, Páll og Gísli Vil-
hjálmssynir, sáu sér leik á borði og fengu
hann til að smíða nýjan og stærri Val en þann
sem faðir þeirra keypti 1906 og þjónað hafði
vel síðan Og þar sem ákveðið var að nota
veturinn til smíðanna var nauðsynlegt að
koma upp skýli sem rúmað gæti byrðinginn
þótt yfirbyggingu og reiða yrði að setja upp
úti með vori. Það mun hafa verið eftir þessa
stækkun á Salthúsinu að komið var fyrir
saltgeymslu í NA-hominu, stíu sem mun hafa
tekið 10-20 tonn.
Laust fyrir eða um 1930 var Kolaskúrinn
rifinn og byggt við suðurhlið Miðhússins
endilanga og á tveimur hæðum. A hinni
64