Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Blaðsíða 43
Sveitin mín
Snjóaveturinn 1966 skapaði mikla erfiðleika við mjólkurflutninga, en leystist farsœllega, undir öruggri
stjórn mjólkurbílsstjórans okkar ötula, Guðmars Ragnarssonar, sem ók mjólkinni um árabil og var
tilbúinn til að hlaupa afeinu tœkinu á annað efveður og fœrð hamlaði. Ljósm.; Steinþór Eiríksson.
mjólkurbús hugmyndinni. Skemmst er af
því að segja að „Sveitin mín“ breytti algjör-
lega um svip upp úr miðjum sjötta áratugn-
um, fóru bændur að auka ræktun, bæta
byggingar og selja mjólk. Sagan er hér ekki
öll sögð um veðurfarsleg áhrif á búshættina
á þeim tíma sem eftir lifði aldar, því kalárin
miklu milli 1960-1970 voru erfið, en fóður-
skorti afstýrt með því að sá grænfóðri,
heyja í blánum og með fóðurbætiskaupum,
að sjálfsögðu með smá hjálp hins opinbera.
Snjóaveturinn 1966 skapaði mikla erfið-
leika við mjólkurflutninga, en leystist far-
sællega, undir öruggri stjórn mjólkur-
bílsstjórans okkar ötula, Guðmars Ragnars-
sonar, sem ók mjólkinni um árabil og var
tilbúinn til að hlaupa af einu tækinu á annað
ef veður og færð hamlaði.
Síðan kemur vorið 1979 sem ég tel það
erfiðasta sem ég hef lifað hvað varðaði
sauðfjárbúskapinn en þá skipti sköpum í
samanburði við vorið 1949 að til voru
nothæf hús fyrir búsmalann og næg hey.
Taflan sannar hvað snöggan kipp rækt-
unin og sauðtjár- og nautgripaeignin tekur
frá 1950-1973 og um leið hve mikið rækt-
anlegt land sveitin á. Ræktun hefur talsvert
aukist síðan auk þess sem mikið er eftir af
ræktanlegu landi í sveitinni. Auk þess væri
hægt að klára það verk sem hafið var með
framræslu blánna (sbr. grein mfna í II. b.
Sv.j. Múlþ. bls. 336) til að gera þær hæfari
til beitar og slægna ef kal hrjáir túnin.
Þennan aðalframfaratíma sveitarinnar á 20.
öldinni, frá 1950-'75, áttum við sem fyrr á
að skipa úrvalsfólki í hverju rúmi, svo eftir
var tekið, en því miður ekki nóg af aðlað-
andi atvinnutækifærum, ekki einu sinni
þriggja fasa rafmagn sem e.t.v. hefði skipt
sköpum. Nú er margt af þessu fólki horfið
til feðra sinna, aðrir hættir búsýslu og burt-
fluttir sökum aldurs og krankleika sem allt
41