Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Blaðsíða 64
Múlaþing
Brekkupakkhús 2001. Til hœgri Frystirinn.
Ljósm. Jóhanna Lárusdóttir.
ekki kantskornir, stoðir, loftbitar og sperrur.
Standklæðning mun hafa verið á húsinu í
fyrstu og notuð ragborð og neglt borð yfir
þar sem tvö borð mættust. A þaki var liggj-
andi klæðning úr kantskornum borðum og
yfir spónn, vel skaraður. Ég giska á að hver
spónn hafi verið nálægt 30x10 cm og
þykktin varla meiri en 2-3 mm. Hvernig
þessi þakklæðning var fest veit ég ekki en
hún entist ótrúlega lengi. Ég man þegar
spónninn var fjarlægður um 1920 og þakið
járnklætt og þótti mér þá, fimm vetra snáða,
sem spónninn væri áhugaverður srníða-
viður.
Pakkhúsið frá 1883 er 10x5 metrar að
flatarmáli, tvílyft. Á neðri hæð voru lengi
vel engin skilrúm. Efri hæðinni var skipt
um þvert. Var ytri hlutinn minni og kallaður
Prestloft því þar hafði séra Þorsteinn Hall-
dórsson geymslu urn hríð. Yfir þeim hluta
var háaloft og nokkurt geymslurými þar í
risinu, hentugt fyrir þau þing sem sjaldan
þurfti að grípa til. (Svo sem eins og vélin úr
gamla Val og Cymbilína fagra, fullur tré-
kassi sem dagaði uppi á skipaafgreiðslunni.
Seint og um síðir fór vélin á safn. Og bókin
Cymbilína (seinni hluti, því annað var ekki
í kassanum) var á endanum tekin til al-
menningsnota sem „forhlað“, enda gott
eintak af bókinni allri í Lestrarfélaginu.) Nú
er þess að geta að Brekkupakkhúsið átti
fyrir sér að stækka í áranna rás. Mun það
hús er nú stendur, árið 2000, hafa verið
byggt í allt að sjö áföngum. Elsti hlutinn ber
af. Hann hlaut fljótlega sérheitið Miðhús
þegar byggt hafði verið við báða enda.
Nærri miðri suðurhlið þess voru dyr. Fram-
an við þær mun fljótlega hafa verið gerður
pallur úr timbri þar sem gert var að fiski
þeim sem aflaðist á árabátana, oft tvo eða
þrjá. Fyrsta viðbyggingin var Kolaskúrinn.
Hann var við suðurhliðina vestanverða og -
ásamt Pakkhúsinu - sést vel á ljósmynd
Ingimundar Sveinssonar frá 1908. Þar voru
geymd kol til heimilisins - og þurfti mikils
með. í nýja íbúðarhúsinu á Brekku (1882-
1892-1905) var stór og þurftafrek Hus-
qvarna eldavél og allmargir kolaofnar. Sagt
var að eldavélin ein hefði hesthúsað allt að
40 tonn af kolum yfir árið þegar flest var
62