Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Blaðsíða 159
Fólk að baki hluta á minjasafni
1985; var lengi vinnukona á Ketilsstöðum á
Völlum, dvaldi síðar á Keldhólum en síðast
í Grófargerði, missti sjón af slysförum og
var blind í 41 ár, vann þó ótrúlega mikið.
Bjarni, f. 28. apríl 1895, d. 28. júlí 1981,
dvaldi nokkur ár á lýðháskólum í Dan-
mörku og Svíþjóð, lauk kennaraprófii 1934,
kenndi í Loðmundarfirði og lengst á Fá-
skrúðsfirði, dvaldi eftir það í Grófargerði.
Helga Vilhelmína, f. 4. desember 1897,
d. 6. janúar 1984, var bústýra í Grófargerði
frá 1936, fyrst hjá Asmundi bróður sínum
en eftir það hjá Alfreð syni sínum til
æviloka.
Eins og sjá má hér að framan náðu
systkinin í Grófargerði háunr aldri, sérstak-
lega þrjú hin yngstu. Unaðslegt var að
koma til þeirra og finna andlegan styrk
þeirra og samheldni. Þau lifðu kyrrlátu lífi í
fullri starfsemd til hins síðasta.
Alfreð, sonur Helgu Vilhelmínu og
Eymundar Einarssonar í Flögu í Skriðdal,
tók við búskap í Grófargerði árið 1951.
Árið 1990 hætti Alfreð búskap, seldi
jörðina og fluttist í Egilsstaðabæ, sem nú er
hluti af sameinuðu sveitarfélagi á Austur-
Héraði. Alfreð lést 21. ágúst árið 2000.
Ekki er lengur hefðbundinn búskapur í
Grófargerði.
Nokkur atriði til viðbótar
Eftirfarandi atriði hafði Alfreð Ey-
mundsson eftir Þórunni ömmu sinni:
Hún mundi fyrst til sín á Freyshólum,
fluttist þangað með foreldrum sínum er hún
var á 1. aldursári. Faðir hennar, Bjarni
Bjarnason, var þá orðinn aldraður og þoldi
illa erfiðisvinnu en yngri synir hans af fyrra
hjónabandi að verða uppkomnir og tveir
þeir elstu, Jón og Bjami, kvæntir og búsettir
Heimilisfólkið Grófargerði.
Ljósm.; Héraðsskjalasafn Austfirðinga 70-4578.
Vilborg og Þórður í Hvammi ásamt tveimur afkom-
endum sínum haustið 1963.
Ljósm.; Héraðsskjalasafn Austfirðinga 70-4578.
157