Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 14
14
Ávarp forseta Alþingis, Sturlu Böðvarssonar
Forseti Íslands, Biskupinn yfir Íslandi, forsætisráðherra, ráðherra kirkjumála, forseti
Kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúar og góðir gestir.
Ég vil byrja á að lýsa sérstakri ánægju með að vera meðal ykkar við upphaf Kirkjuþings
og fá að ávarpa þingið.
Um langt aldabil hafa verið sterk tengsl milli Alþingis og Þjóðkirkjunnar. Lögleiðing hins
kristna siðar fyrir rúmum þúsund árum á Þingvöllum er sá atburður sem hvað merkastur
er í sögu okkar. Kristnitakan batt sögu þings og kristni órjúfanlegum böndum.
Dæmi um samstarf kirkju og þings eru lög um samstarfsnefnd Alþingis og Þjóðkirkjunnar
frá 1982. Tilgangur samstarfsnefndarinnar var eins og segir í fyrstu grein laganna að
„vinna að auknum skilningi í löggjafarstarfi á vandamálum og verkefnum kirkjunnar“.
Nefndin starfaði um árabil, en aukið sjálfstæði kirkjunnar í kjölfar nýrra laga um stöðu,
stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar, breyttu forsendum þessa samstarfsvettvangs. Auknu
sjálfstæði Þjóðkirkjunnar ber vissulega að fagna og það hefur tvímælalaust styrkt stöðu
hennar. Ég tel að ekkert megi raska þessu sjálfstæði.
Engu að síður er rík ástæða til þess að gott samband sé jafnan milli Þjóðkirkjunnar og
Alþingis eins og ég hef undirstrikað í ræðum í þinginu. Í dag eru aðrir tímar en áður var
og margir „siðir“ í landi voru. Langflestir tilheyra þó hinni íslensku Þjóðkirkju. Alþingi
og hin lútersk-evangelíska Þjóðkirkja hafa átt langt og gott samstarf. Biskupar og prestar
hennar hafa þjónað við hátíðlega athöfn við upphaf þings hvert haust.
Ótalmargt í kenningum kristninnar hefur markað djúp og heilladrjúg spor við að rækta
siðferðisvitund þjóðarinnar.
Þjóðkirkjan og Alþingi eru meðal mikilvægustu stofnana íslensks samfélags. Þær eru við
fyrstu sýn býsna ólíkar; Þjóðkirkjan hefur það markmið að vera þjóðinni hið andlega
bjarg sem veitir okkur skjól og styrk í meðbyr en ekki síður mótbyr þar sem hin kristnu
siðferðisgildi eru í hávegum höfð.
Alþingi er þjóðinni hið veraldlega bjarg. Með lögum frá Alþingi er samfélagið
grundvallað. Kirkjuþing og Alþingi eiga það sameiginlegt að vera vettvangur
reglusetningar og umræðu. Þjóðkirkjulögin frá 1997 veittu Kirkjuþingi heimild til að
skipa með starfsreglum flestum þeim málefnum, sem áður var gert með lögum frá
Alþingi eða reglugerðum frá kirkjumálaráðuneytinu.
Auknum völdum fylgir auðvitað aukin ábyrgð, og ég treysti því að farsælast sé að kirkjan
leysi sjálf úr sínum innri málum.
Það er stundum sagt að lýðræðið sé tímafrekt í hinni hraðfleygu veröld okkar. Hvað sem
því líður, þá eru skoðanaskipti og gagnrýnin umræða mikilvæg, ekki síst á þeim vettvangi
þar sem stefnumótun og flókin reglusetning fer fram. Þar þurfa sem flest sjónarmið að
heyrast. Með samræðu greiðum við úr flóknum viðfangsefnum. Við megum ekki veigra
okkur við því að laða fram mismunandi skoðanir á brennandi málum. Til þess er