Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 34
34
Mál lögð fram á Kirkjuþingi 2008
1. mál Kirkjuþings 2008. Skýrsla Kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og
öðrum fylgigögnum
Skýrsla þessi er lögð fyrir Kirkjuþing 2008 skv. starfsreglum um Kirkjuráð nr. 817/2000.
Að venju er vísað til Árbókar kirkjunnar þar sem m.a. er að finna skýrslur um
kirkjustarfið.
2. mál Kirkjuþings 2008. Fjármál Þjóðkirkjunnar
Að venju eru fjármál Þjóðkirkjunnar lögð fram á Kirkjuþingi . Reikningar stofnana og
sjóða vegna ársins 2007 eru aðgengilegir öllum kirkjuþingsfulltrúum. Útdráttur úr helstu
ársreikningum er í Árbók kirkjunnar.
Lögð er fram áætlun vegna prestsembætta 2009 sem fylgiskjal með fjármálum
Þjóðkirkjunnar.
Ríkisendurskoðun hefur skilað endurskoðunarskýrslu vegna sjóða kirkjunnar og
Biskupsstofu fyrir árið 2007, án athugasemda. Þó var bent á í skýrslu um Jöfnunarsjóð
sókna að huga þurfi að endurskoðun útreikninga og aðferðafræði við ákvörðun á tillagi til
ábyrgðardeildar sjóðsins.
3. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um
skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007
Biskup Íslands flytur málið. Lagt er til að Búrfells-, Mosfells- og Stóru-Borgarsóknir,
Mosfellsprestakalli, Árnessprófastsdæmi, sameinist í eina sókn, Mosfellssókn. Enn
fremur að Reykholts- og Stóra-Ásssóknir, Reykholtsprestakalli, Borgarfjarðarprófasts-
dæmi, sameinist í eina sókn, Reykholtssókn. Sameining öðlist gildi 1. desember 2008.
4. mál Kirkjuþings 2008. Áfangaskýrsla nefndar um endurskoðun þjóðkirkjulaga
Vísað er til umfjöllunar hér að framan um ályktun Kirkjuþings 2007 í 7. máli um skipun
nefndar til að endurskoða löggjöf um Þjóðkirkjuna. Nefndin leggur áfangaskýrslu fyrir
Kirkjuþing 2008, þar sem gerð er grein fyrir störfum nefndarinnar, og drög að frumvarpi
sem umræðugrundvöll.
5. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga til þingsályktunar um heildarskipan þjónustu
kirkjunnar
Á Kirkjuþingi 2006 var samþykkt að beina því til Kirkjuráðs að skipa nefnd til að vinna
tillögur að heildarskipan þjónustu Þjóðkirkjunnar á grundvelli Stefnu og starfsáherslna
Þjóðkirkjunnar 2004-2010. Nefndina skipuðu sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur og
kirkjuþingsfulltrúi, sem jafnframt var einn af flutningsmönnum tillögunnar; Steinunn
Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnastjóri stefnumótunar á Biskupsstofu; og sr. Þorvaldur