Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 84
84
14. mál - Samþykkt um staðfestingu stofnskrár fyrir Stofnun dr. Sigurbjörns
Einarssonar, rannsókna- og fræðaseturs í trúarbragðafræðum og guðfræði
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Kristján Björnsson
Inngangur
1. gr.
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar er í eigu Þjóðkirkjunnar.
2. gr.
Aðsetur stofnunarinnar er í Kapellu ljóssins á Vallarheiði í Reykjanesbæ. Hún er stofnuð
í samstarfi við Guðfræðistofnun Háskóla Íslands og starfar þar í samvinnu við Alþjóða-
háskólann Keili. Stofnunin skal stefna að samvinnu við erlendar guðfræðistofnanir,
erlenda og innlenda háskóla, rannsóknarstofnanir í trúarbragðafræðum, aðrar kirkjudeildir
og Samráðsvettvang trúarbragða.
Hlutverk og aðstaða
3. gr.
Hlutverk Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar er að vinna að rannsóknum og fræðslu í
trúarbragðafræði og guðfræði í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á trúar-
brögðum heimsins og stuðla að sáttargjörð ólíkra trúarviðhorfa, vinna gegn tortryggni og
efla skilning og umburðarlyndi.
4. gr.
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar veitir aðstöðu til fræðslu, ráðstefnuhalds, námskeiða
og rannsókna.
5. gr.
Stofnunin skal varðveita í Kapellu ljóssins hin sýnilegu tákn þess að húsið hefur frá
upphafi verið helgidómur ólíkra trúarbragða. Auk þess hefur stofnunin annað húsnæði í
eigu Kirkjumálasjóðs á svæðinu til umráða samkvæmt nánari ákvörðun Kirkjuráðs.
Stjórn og skipan
6. gr.
Kirkjuráð skipar fimm menn í stjórn stofnunarinnar til fjögurra ára. Þar af tilnefnir biskup
Íslands formann og varaformann og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands einn stjórnarmann.
7. gr.
Í samráði við biskup Íslands er stjórninni heimilt að skipa allt að fimm manna fagráð til
eins árs í senn, sem er stjórn og forstöðumanni til ráðuneytis. Leita má tilnefninga til
fagaðila, stofnana og samtaka er starfa á sviði stofnunarinnar.