Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 38
38
rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999. Áfram verður unnið
að endurskoðun á framangreindum starfsreglum um rekstrarkostnað presta og vegna
prófastsstarfa.
Rekstrarkostnaður sérþjónustupresta erlendis
Kirkjuráð samþykkti, vegna lækkandi gengis krónunnar, að Kirkjumálasjóður skyldi veita
Biskupsstofu framlag á þessu ári að fjárhæð 3 m. kr. til að koma til móts við presta
Þjóðkirkjunnar í Gautaborg, Kaupmannahöfn og London með sérstakri staðaruppbót.
VI. Fasteignir
Nýtt fasteignasvið
Eins og fram kom í skýrslu Kirkjuráðs fyrir Kirkjuþing 2007 var ákveðið að stofna
fasteignasvið Kirkjuráðs, sem væri rekið af Kirkjumálasjóði. Viðfangsefni sviðsins voru
þá skilgreind eftirfarandi:
1. Fasteignir Kirkjumálasjóðs
- Laugavegur 31, Bergstaðastræti 75, Hjarðarhagi 30 (íbúð á 1. hæð), Háaleitisbraut 66
(Grensáskirkja) neðri hæð, allt í Reykjavík, Skálholt, vígslubiskupssetur á Hólum og
Langamýri.
2. Aflögð prestssetur
- prestssetursjarðir: Desjarmýri, Skeggjastaðir, Ásar, Bergþórshvoll, Hvoll í Saurbæ,
Vatnsfjörður, Árnes I, Prestbakki, Háls.
- prestsbústaðir: Tálknafjörður, Raufarhöfn.
3. Núverandi prestssetur skv. starfsreglum Kirkjuþings um prestakallaskipan
- Kaup og sala – nýbyggingar - meiri háttar viðhald.
4. Leiga og útleiga húsnæðis
5. Ráðgjöf til sóknarnefnda og við úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sókna varðandi kirkjur og
safnaðarheimili
6. Önnur mál skv. ákvörðun Kirkjuráðs
Samkvæmt samþykkt Kirkjuráðs skal ráðið fara með yfirumsjón og fyrirsvar þessara
viðfangsefna, samþykkja árlegar verk- og fjárhagsáætlanir fyrir fasteignaumsýsluna og
taka ákvarðanir um einstök mál eftir því sem þurfa þykir. Kirkjuráð undirbýr, með
tilstyrk ráðgjafarhóps um fasteignir, tillögur fyrir Kirkjuþing um stefnumótun og mikla
hagsmuni og gerir þinginu jafnframt árlega grein fyrir starfsemi og ákvörðunum sínum á
þessu sviði.
Kirkjuráð skipaði fjórða starfshóp sinn til ráðgjafar og undirbúnings ákvarðana um
fasteignir, skipaðan þremur mönnum, þar af einum Kirkjuráðsmanni og einum kirkju-
þingsmanni. Skipun hópsins er tilgreind fyrr í skýrslu þessari. Ráðgjafarhópurinn hefur
unnið að fasteignamálum kirkjunnar og veitt Kirkjuráði margvíslega ráðgjöf um úrlausnir
mála.
Helstu málefni sem Kirkjuráð hefur fjallað um frá síðasta Kirkjuþingi og varða fasteignir
eru eftirtalin: