Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 40
40
Í samræmi við samþykkt Kirkjuþings 2007 var 5. desember 2007 undirritaður kaup-
samningur um kaup kirkjunnar á Kapellu ljóssins að Víkingabraut 775 og þremur rað-
húsaíbúðum að Breiðbraut 672 á Vallarheiði. Unnið hefur verið að endurbótum á hús-
næði Kirkjumálasjóðs á Vallarheiði, m.a. var rafmagni breytt til samræmis við íslenska
staðla. Enn er unnið að úrlausn varðandi hljóðvist í Kapellu ljóssins en kapellan er leigð
út til Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Hljóðvistin í sal kapellunnar þykir
ekki heppileg fyrir kennslu og fyrirlestrahald.
Til athugunar hefur verið að finna nýtt húsnæði eða byggja nýtt hús fyrir starfsemi
Kirkjuhússins, sem nú er að Laugavegi 31, Reykjavík. Öll áform um þetta hafa þó verið
lögð á hilluna í bili vegna óhagstæðra ytri skilyrða í efnahagsumhverfinu.
Skálholt
Unnið hefur verið að undirbúningi viðbyggingar við Skálholtsskóla fyrir sýningarskála,
móttöku- og ráðstefnusal og bókhlöðu, eins og fram kom í síðustu skýrslu Kirkjuráðs.
Unnið hefur verið að hönnun viðbyggingarinnar og gerð byggingarteikninga á tímabilinu
og er verkefnið tilbúið til útboðs. Kostnaðaráætlun hefur hækkað vegna mikillar
hækkunar á byggingavísitölu. Auk þess er fjármögnun ekki fyllilega tryggð eins og fyrr
greinir og þykir því eðlilegt að bíða með útboð verksins uns aðstæður batna. Minnt er á
að íslenska ríkið tekur þátt í verkefninu með því að leggja fram 48 millj. kr. á átta árum.
Eins og áður hefur komið fram hefur verið unnið að gerð tillögu að deiliskipulagi fyrir
sumarhúsabyggð á Borgarhólum í landi Skálholts. Gert er ráð fyrir um 90 lóðum og er
tillagan ennþá til meðferðar hjá skipulagsyfirvöldum. Öllum áformum um úthlutun lóða
hefur þó verið slegið á frest.
Þinglýsingar
Unnið hefur verið áfram að þinglýsingum fasteigna kirkjunnar á Kirkjumálasjóð og má
telja að búið sé að þinglýsa flestum eignunum. Eins og ljóst má vera hafa ýmis álita- og
vandamál komið upp sem unnið er að lausn á.
Kirkjuráð lét kanna hvernig þinglýsingum kirkna er háttað. Í ljós kom að það er með
ýmsu móti og sumstaðar eru kirkjur ekki skráðar í landsskrá fasteigna. Kirkjuráð telur
nauðsynlegt að allar kirkjur, sem þjóðkirkjusóknir hafa umsjón og fjárhald fyrir séu
skráðar sem eign Þjóðkirkjunnar/viðkomandi sóknar í landsskrá fasteigna með
samræmdum hætti. Kirkjuráð ályktaði að beina þeim tilmælum til sóknarnefna að kirkjur
yrðu skráðar með tilteknum hætti. Kirkjuráð ákvað að bjóða þeim sóknum sem það kjósa
aðstoð við framkvæmd þessa verks, undirbúning stofnskjala og samningagerð, samskipti
við sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila eftir því sem við á. Þá ályktaði Kirkjuráð að
ráða lögfræðing til að kanna stöðu mála varðandi ítök og önnur réttindi kirkna og stöðu
og réttindi bændakirkna. Lögfræðingurinn skyldi jafnframt annast umsjón eða aðstoð við
sóknarnefndir vegna þinglýsinga.
Kaup og sala eigna
Vísað er í 8. mál Kirkjuþings 2008 og greinargerð með því.