Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 37
37
16. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga til þingsályktunar um skiptingu jarðarinnar
Mosfells, Kjalarnessprófastsdæmi
Kirkjuráð óskar heimildar Kirkjuþings til breytingar á jörðinni Mosfelli í Mosfellsbæ,
þannig að prestssetrið verði eftirleiðis íbúðarhúsið – prestsbústaðurinn – ásamt
landspildu. Þykir eðlilegt, með hliðsjón af staðsetningu jarðarinnar á höfuðborgarsvæðinu
að samræma fyrirkomulag á Mosfelli, öðrum sambærilegum prestssetrum í þéttbýli og
breyta skyldum og ábyrgð á jarðarumsýslunni.
IV. Lög og reglur
Eins og áður hefur komið fram í skýrslu þessari voru ýmsar starfsreglur samþykktar á
Kirkjuþingi 2007. Þær eru, ásamt öðrum gildandi réttarheimildum, birtar á vef kirkjunnar,
kirkjan.is. Áður hefur verið minnst á endurskoðun laga um stöðu, stjórn og starfshætti
Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Gert er ráð fyrir að aðgengi að lagagögnum kirkjunnar á vef
hennar verði endurskoðað og bætt til muna þegar nýr vefur kirkjunnar verður tekinn í
notkun í októbermánuði 2008. Sérstaklega verður lögð áhersla á að auðvelda útprentun
gagnanna. Áður hefur verið greint frá breytingum á lögum um staðfesta samvist.
V. Fjármál
Fjárhagsáætlanir og úthlutun
Kirkjuráð samþykkti í desembermánuði 2007 fjárhagsáætlanir Kirkjumálasjóðs og
úthlutaði úr Jöfnunarsjóði sókna og Kirkjumálasjóði fyrir árið 2008. Veitt var fé til
verkefna sem lögmælt eru, verkefna samkvæmt samþykktum Kirkjuþings og verkefna
samkvæmt sérstökum ákvörðunum Kirkjuráðs. Að vanda var úthlutað styrkjum til ýmissa
annarra verkefna. Þá veitir Kirkjuráð framlög til samningsbundinna verkefna, sem
Þjóðkirkjan er aðili að. Má þar t.d. nefna samstarfssamning um útgáfu ritraðarinnar
Kirkjur Íslands, Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, samning um Löngumýri, Sið-
fræðistofnun, stofnun um fjölskyldurannsóknir, o.fl. Kirkjuráð leggur fram tillögu að
þingsályktun um fjárfestingarstefnu kirkjunnar í 9. máli Kirkjuþings 2008. Þá leggur
Kirkjuráð fram fjárhagsáætlun ársins 2009 fyrir framangreinda sjóði. Eins og ljóst má
vera bera fjárhagsáætlanir með sér að aðhalds verður gætt í hvívetna árið 2009. Vegna
hækkandi verðlags, verðbólgu og lægri tekna er ljóst að kirkjan verður að gæta aðhalds í
fjármálum sínum. Ýmsum framkvæmdum verður slegið á frest eða hætt við þær og
almennt verður dregið svo sem kostur er úr útgjöldum.
Kirkjur Íslands
Á árinu komu út í ritröðinni Kirkjur Íslands 12. bindi, Kjalarnessprófastsdæmi, en útgáfa
þessi er samstarfsverkefni Biskupsstofu/Kirkjuráðs, Húsafriðunarnefndar ríkisins, Hins
íslenska bókmenntafélags og Þjóðminjasafns Íslands.
Aksturskostnaður prestsembætta
Kirkjuráð ákvað að koma því á framfæri við Kirkjuþing að hlutast til um hækkun
fjárhagsviðmiða vegna aksturskostnaðar prestsembætta á árinu 2009 í starfsreglum um