Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 68
68
sérstakar og knýjandi aðstæður. Gert er ráð fyrir því að Kirkjuþing setji sérstakar reglur
um málsmeðferð vegna þessa í þingsköp.
Um 21. gr.
Um tilsjónarvald biskups og kenningarnefnd er nú mælt fyrir í 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. og
14. gr. núgildandi laga. Rétt þykir að hafa í einni grein þessi ákvæði er lúta að kristnihaldi
og kenningu Þjóðkirkjunnar.
Um 22. gr.
Greinin er efnislega samhljóða 2. og 3. mgr. 10. gr. núgildandi laga en því er þó bætt við
að biskup vísiteri söfnuði eins og tíðkast hefur um aldir. Þá er lagt til að samkomulag
liggi fyrir við evangelísk-lúterska fríkirkjusöfnuði áður en biskup Íslands vígir til
prestsembættis eða djáknaþjónustu einstaklinga sem hafa verið kallaðir til þjónustu af
þeim.
Um 23. gr.
Efnisákvæði í þessari grein koma fram í 10. gr. núgildandi laga. Ákvæði um tilsjón
biskups Íslands með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu er hins
vegar flutt í 21. gr. frv. og ákvæði um forsæti biskups í Kirkjuráði er flutt í þann kafla er
fjallar um Kirkjuráð, sbr. 13. gr. frv.
Um 24. gr.
Ákvæði um yfirumsjón biskups Íslands með kirkjuaga innan Þjóðkirkjunnar er að finna í
11. gr. núgildandi laga. Í þessu frumvarpi er lagt til að ákvæði 12. og 13. gr. laganna um
úrskurðarnefnd og áfrýjunarnefnd verð felld brott en þau úrræði sem þar er mælt fyrir um
þykja ekki hafa gefið góða raun auk þess sem þau hafa verið afar kostnaðarsöm. Rétt
þykir að Kirkjuþing finni aga- og ágreiningsmálum innan Þjóðkirkjunnar farveg eftir því
sem þingið kýs, sbr. 3. mgr., en ákvæði um meðferð ágreiningsmála er nú þegar að finna í
starfsreglum um prófasta og vígslubiskupa. Þess utan er hin almenna dómstólaleið í
landinu að sjálfsögðu opin til að leysa úr ágreiningsmálum innan Þjóðkirkjunnar eftir því
sem við getur átt.
Í 2. mgr. er lagt til að biskupi Íslands verði fengið í hendur ákveðið úrræði þegar
sérstaklega stendur á og nauðsyn ber til að bregðast við vegna brota eða ávirðinga í starfi,
einkum af siðferðilegum toga, þ.e. heimild til að setja starfsmenn Þjóðkirkjunnar í launað
leyfi í allt að sex mánuði án samþykkis þeirra. Ákvæði þetta þykir ekki of íþyngjandi
fyrir starfsmenn Þjóðkirkjunnar en nauðsynlegt getur verið að bregðast við með þessum
hætti í einstökum tilvikum vegna starfsheiðurs kirkjunnar og þeirrar nauðsynjar að um
störf hennar og starfsmenn ríki friður í þjóðfélaginu.
Um 25. gr.
Greinin er efnislega samhljóða 16. og 17. gr. núgildandi laga en þó þykir skýrara að hafa
ákvæði um verkefni þessara biskupa og stöðu í biskupsdæminu í sérstakri grein, sjá 26.
gr. frv.
Í 2. mgr. er lagt til að skipun biskupanna í Skálholti og á Hólum í embætti verði
ótímabundin eins og skipun biskups Íslands með sömu rökum og fram eru færð í athuga-
semdum við 20. gr. frv.