Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 21
21
1. mál - Skýrsla Kirkjuráðs
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Karl Sigurbjörnsson
I. Inngangur
Núverandi Kirkjuráð var kjörið á Kirkjuþingi 2006, en kosið var til Kirkjuþings á fyrri
hluta árs 2006. Forseti Kirkjuþings var kjörinn Pétur Kr. Hafstein, fyrrv. hæstaréttar-
dómari.
Forseti Kirkjuráðs er lögum samkvæmt biskup Íslands, Karl Sigurbjörnssson. Kjörnir
ráðsmenn eru sr. Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holtsprestakalli, Rangárvalla-
prófastsdæmi; Jóhann E. Björnsson, fyrrv. forstjóri, Reykjavík; sr. Kristján Björnsson,
sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi; og Sigríður M.
Jóhannsdóttir, hverfisstjóri heimaþjónustu Akureyrarbæjar, Akureyri.
Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs er Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur.
II. Störf Kirkjuráðs
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð hefur haldið tíu fundi eftir Kirkjuþing 2007. Fundirnir voru yfirleitt haldnir á
Biskupsstofu en einn kirkjuráðsfundur var í Grensáskirkju. Auk kirkjuráðsmanna og
framkvæmdastjóra sitja fundi ráðsins Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri
Biskupsstofu; Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu; og Þorvaldur Karl
Helgason, biskupsritari, sem ritar fundargerðir.
Forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, hefur setið fundi Kirkjuráðs er fjallað er um
Kirkjuþing, framkvæmd samþykkta síðasta þings og undirbúning næsta þings. Forsætis-
nefnd Kirkjuþings, sem er skipuð forseta auk varaforseta þingsins, þeim Margréti
Björnsdóttur og Ásbirni Jónssyni, kom á fund Kirkjuráðs í nóvembermánuði 2007 þegar
farið var yfir samþykktir Kirkjuþings 2007. Til þess fundar voru einnig boðaðir formenn
fastanefnda Kirkjuþings en einungis formaður fjárhagsnefndar, Einar Karl Haraldsson,
gat setið fundinn.
Árbók kirkjunnar
Skýrslur kirkjulegra stofnana og nefnda birtast í Árbók kirkjunnar sem nær yfir tímabilið
frá 1. júní 2007 til 31. maí 2008. Árbókin var send þingfulltrúum eftir að hún kom út.
Starfshópar Kirkjuráðs
Eftir Kirkjuþing 2006 voru starfshópar Kirkjuráðs, sem veita ráðinu ráðgjöf og leið-
beiningar við úrlausnir mála, skipaðir. Í hverjum hópi er einn kirkjuráðsmaður, formaður
samsvarandi þingnefndar Kirkjuþings og einn tilnefndur af biskupi Íslands.