Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 31
31
9. mál. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr. 732/1998,
starfsreglum um presta nr. 735/1998 o.fl.
Um er að ræða málsmeðferð þegar söfnuður óskar eftir að prestsembætti sé auglýst að
liðnum fimm ára skipunartíma. Starfsreglur þessar voru birtar í B–deild Stjórnartíðinda
og gefnar út á vef kirkjunnar.
10. mál. Þingsályktun um skipun nefndar til að endurskoða stöðu prestsembætta á
vegum Þjóðkirkjunnar í sérþjónustu
Kirkjuþing 2007 felur Kirkjuráði að meta þörf og gera úttekt á prestsþjónustu við
Íslendinga á erlendri grund og semja heildstæða stefnumótun um þá þjónustu. Þá verði
sérþjónustuþörf kirkjunnar innanlands metin og gerðar tillögur um framtíðarskipan
hennar þar sem hugað verði sérstaklega að samstarfi sérþjónustupresta við presta og
starfsfólk safnaðanna. Einnig verði hugað að samræmdri yfirstjórn embættanna á vegum
Biskupsstofu og gerð sérstakra þjónustu- og samstarfssamninga við stofnanir og
félagasamtök þar sem það á við. Kirkjuráð skili niðurstöðum til Kirkjuþings 2008.
Fram kom að heiti málsins var ekki í samræmi við ályktunina og því var talið rétt að
leiðrétta heiti málsins sem verði birt í Gerðum Kirkjuþings þannig: Þingsályktun um
endurskoðun á stöðu prestsembætta í sérþjónustu á vegum Þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð samþykkti að fela nefnd um kærleiks- og sérþjónustu þessa þingsályktun til
umfjöllunar. Upplýsingar um skipan nefndarinnar koma fram fyrr í skýrslunni. Vísað er
til umfjöllunar um 7. mál Kirkjuþings 2008.
11. mál. Þingsályktun um skipun nefndar til að endurskoða stöðu og starfshætti
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Kirkjuþing 2007 ályktaði að fela Kirkjuráði að skipa þrigga manna starfshóp til að meta
stöðu og starfshætti Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Skoðað skyldi sérstaklega hvernig efla megi þjónustuna við landsbyggðarfólk.
Kirkjuráð samþykkti að skipa Sæmund Hafsteinsson, sálfræðing og félagsmálastjóra
Hafnarfjarðarbæjar, sem formann starfshópsins; sr. Gunnlaug Stefánsson, sóknarprest í
Heydalaprestakalli, Austfjarðaprófastsdæmi og kirkjuþingsfulltrúa; og sr. Elínborgu
Gísladóttur, sóknarprest í Grindavíkurprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Nefndin hefur
skilað skýrslu til Kirkjuráðs sem fylgir skýrslu þessari ásamt athugasemdum frá
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
12. mál. Þingsályktun um skipun nefndar til að endurskoða og efla upplýsinga- og
almannatengsl á vegum Þjóðkirkjunnar og samband kirkju og fjölmiðla
Kirkjuþing 2007 ályktaði að fela Kirkjuráði að skipa nefnd til að endurskoða og efla
upplýsinga- og almannatengsl á vegum Þjóðkirkjunnar og samband kirkju og fjölmiðla.
Nefndin skyldi m.a. skipuð fólki með þekkingu á almannatengslum, fjölmiðlun og starfi
kirkjunnar.
Kirkjuráð samþykkti að skipa í nefndina Birgi Guðmundsson, fjölmiðlafræðing við
Háskólann á Akureyri, sem jafnframt verði formaður; sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknar-