Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 57
57
Nánari ákvæði um val á sóknarpresti og presti samkvæmt 3. mgr. 34. gr., m.a. um skilyrði
til almennra kosninga, setur Kirkjuþing í starfsreglur.
37. gr.
Biskup Íslands veitir þeim embætti sóknarprests eða annars prests skv. 3. mgr. 34. gr.
sem valinn hefur verið eða kosinn en ákvarðar að öðrum kosti veitingu. Nánari ákvæði
um veitingu prestsembætta setur Kirkjuþing í starfsreglur.
Skipað skal í embætti sóknarprests eða annars prests skv. 3. mgr. 34. gr. til fimm ára, sbr.
23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hinu sama gegnir um embætti
héraðsprests.
Biskup Íslands skal tilkynna presti eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartími hans
rennur út hvort embættið verði auglýst laust til umsóknar.
Komi fram rökstudd tillaga í prestakallinu um að embætti skuli auglýst laust til umsóknar
skal með tillöguna farið eftir starfsreglum sem Kirkjuþing setur.
38. gr.
Hafi enginn sótt um embætti er biskupi Íslands heimilt að setja prest í embættið í allt að
eitt ár. Embættið skal auglýst að nýju að setningartíma loknum.
39. gr.
Biskup Íslands útnefnir prófasta úr hópi þjónandi presta prófastsdæmisins. Prófastar eru
fulltrúar biskups Íslands í prófastsdæmum og trúnaðarmenn hans og hafa í umboði
biskups almenna tilsjón með kirkjulegu starfi.
Biskup Íslands getur útnefnt prófasta til að hafa umsjón með tilteknum þáttum
kirkjulegrar þjónustu.
Kirkjuþing setur starfsreglur um umdæmi prófasta, skipan þeirra, starfsskyldur og um
rekstrarkostnað embætta þeirra.
40. gr.
Djákni Þjóðkirkjunnar er hver sá sem á grundvelli köllunar og vígslu gegnir fastri
djáknaþjónustu í Þjóðkirkjunni eða starfar á vegum stofnunar eða félagasamtaka með
samþykki biskups Íslands. Hann lýtur tilsjón kirkjulegra stjórnvalda í kirkjulegum efnum.
Til að hljóta ráðningu og vígslu sem djákni þarf hlutaðeigandi að hafa lokið viðeigandi
prófi frá guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands eða sambærilegu prófi frá
annarri menntastofnun. Biskup Íslands getur leitað umsagnar Háskóla Íslands um slíkar
stofnanir og próf frá þeim.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði í starfsreglur um ráðningu, starfsþjálfun og þjónustu
djákna.
VII. kafli. Prestastefna.
41. gr.
Biskup Íslands boðar til almennrar prestastefnu og er forseti hennar.
Á Prestastefnu eiga setu- og atkvæðisrétt biskuparnir í Skálholti og á Hólum og allir
þjónandi prestar skv. 33. gr., djáknar í föstu starfi, fastir kennarar við guðfræði- og trúar-