Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 18
18
forystuafl í kirkjustjórninni. Þessum vanda fylgdi aukin ábyrgð, sem Kirkjuþing og
Þjóðkirkjan hafa risið undir. Þess vegna hefur að frumkvæði Kirkjuþings verið gengið til
þess verks að endurskoða nú enn frekar löggjöf um Þjóðkirkjuna í ljósi þessarar reynslu
og vegna breyttra aðstæðna og leita leiða til að einfalda almenna löggjöf frá Alþingi um
málefni Þjóðkirkjunnar og færa ábyrgð og ákvarðanatöku í þeim efnum í enn ríkara mæli
til Kirkjuþings. Þetta er gert í góðri samvinnu við kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason,
sem hefur bæði í orðræðu og embættisverkum sýnt Þjóðkirkjunni velvild og stuðning.
Þjóðkirkjan hefur einnig notið skilnings á Alþingi og á þar marga hauka í horni. Í
aðdraganda og undirbúningsvinnu löggjafar um Þjóðkirkjuna 1997 var skýrlega haft að
leiðarljósi að ekki væri stefnt að aðskilnaði ríkis og kirkju. Svo er heldur ekki við þessa
endurskoðun kirkjulaga enda leggur Þjóðkirkjan á það ríka áherslu að hún vill vera
þjóðkirkja í tengslum við ríkisvaldið án þess að vera ríkiskirkja. Það merkir fyrst og
fremst að kirkjan er sjálfstæður réttaraðili með ríkar skyldur gagnvart íslensku þjóðinni
og ríkisvaldinu, sem ber að styðja kirkjuna og vernda samkvæmt 134 ára gömlu stjórnar-
skrárákvæði. Það merkir jafnframt að þjóð og kirkja séu nátengd og eigi samstöðu um
trúarskilning og trúartraust. Í því felst virðing fyrir manngildi ofar öðrum gildum. Þegar
presturinn á Mosfelli var „í sænginni – sætur“ er biskupinn bar óvænt að garði urðu
miklar sviptingar í hugarfylgsnum klerksins, eins og Einar Benediktsson lýsir svo vel, og
hann flutti víndrukkinn magnaða ræðu. Þar kallast hann á við valdið, sem hann laut fyrir í
lægra haldi, og segir að lokum: „Embættið þitt geta allir séð, en ert þú, sem ber það –
maður?“ Þetta er spurningin, sem við verðum öll að glíma við í lífi og starfi hvernig sem
stöðu okkar er háttað: „Embættið þitt geta allir séð, en ert þú, sem ber það – maður?“
Til næsta fundar á Kirkjuþingi er boðað kl. 14:00 með dagskrá, sem liggur á borðum
kirkjuþingsmanna.
Fundinum er slitið.