Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 59
59
Fjölgi þeim sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna um 5.000 miðað við þjóðskrá í árslok 1996
skal ríkið greiða laun eins prests til viðbótar því sem greinir í 1. mgr. Sama á við um
frekari fjölgun. Fækki þeim sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna um 5.000 miðað við þjóðskrá í
árslok 1996 lækkar tala starfandi presta í 1. mgr. um einn. Sama á við um frekari fækkun.
Fjölgi prestum um tíu, sbr. það sem greinir í 2. mgr., skal ríkið greiða laun eins
starfsmanns á Biskupsstofu til viðbótar því sem greinir í 1. mgr. Sama á við um frekari
fjölgun. Fækki prestum um tíu, sbr. það sem greinir í 2. mgr., lækkar tala starfsmanna á
Biskupsstofu um einn. Sama á við um frekari fækkun.
Um greiðslu launa til framangreindra starfsmanna Þjóðkirkjunnar fer eftir lögum nr.
47/2006 um kjararáð eða lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna
með áorðnum breytingum, eftir því sem við getur átt.
Launagreiðslur annarra starfsmanna Þjóðkirkjunnar eru ríkinu óviðkomandi.
48. gr.
Þeir starfsmenn Þjóðkirkjunnar sem þiggja laun úr ríkissjóði, sbr. 47. gr., njóta réttinda og
bera skyldur sem opinberir starfsmenn eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögum nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, svo og öðrum lögum er kveða á um
réttarstöðu opinberra starfsmanna.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um réttarstöðu starfsmanna Þjóðkirkjunnar í starfsreglur.
IX. kafli. Gildistaka o.fl.
49. gr. Kirkjuþingi er heimilt að setja starfsreglur um önnur málefni Þjóðkirkjunnar en
lög þessi taka til enda sé þess gætt að þær séu ekki í andstöðu við önnur lög um trúarleg
og kirkjuleg málefni.
50. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2010.
51. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti
Þjóðkirkjunnar með áorðnum breytingum, lög um Skálholtsskóla nr. 22/1993, lög nr.
36/1931 um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra með áorðnum breytingum
og lög nr. 9/1882 um leysing á sóknarbandi með áorðnum breytingum.