Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 43
43
Dalvík, Selfossi og á Hvammstanga var málið kynnt og lögð áhersla á að sóknarnefndir
ræddu það út frá eigin aðstæðum. Víða má finna gott samstarf, svo sem milli sókna, t.d.
um starf organista. Einnig eru fjölmörg dæmi um samstarf sókna við stofnanir og
félagasamtök í sókninni og á svæðinu. Þá má og nefna að víða er gott samstarf milli
presta, t.d. hvað varðar fræðslu, og sama á við um prófastsdæmi. Kirkjuráð veitti fé til að
styrkja ákveðin samstarfsverkefni á þessu sviði. Þar er um að ræða djáknaþjónustu og
verkefni á sviði eftirfylgdar, sem var 17. mál Kirkjuþings 2006. Þá má minna á
samstarfssamning Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands sem að framan
greinir, svo og samstarfssamning Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og Endurmenntunar
Háskóla Íslands.
Á þessu starfsári, 2008-2009, er áherslan á umgjörð þjónustunnar, stjórnun og
starfseiningar. Á þessu Kirkjuþingi eru mörg mál sem lúta að þessu, svo sem
endurskoðun þjóðkirkjulaga, 4. mál, heildarskipan þjónustu kirkjunnar, 5. mál,
samþykktir um innri málefni kirkjunnar, 6. mál, sérþjónustu kirkjunnar 7. mál og tillaga
að fjárfestingarstefnu kirkjunnar, 9. mál. Einnig má nefna tillögu að stofnskrá fyrir
Rannsóknarsetur í trúarbragðafræðum og guðfræði, 14. mál.
X. Önnur mál
Launanefnd Þjóðkirkjunnar hefur starfað að gerð tveggja kjarasamninga á árinu. Annars
vegar er um að ræða samning við Félag íslenskra organista, FÍH, og hins vegar
stéttarfélagið Fræðagarð (áður nefnt Útgarður). Samningsgerð er lokið.
Í ár eru liðin 50 ár frá stofnun Kirkjuþings. Kirkjuráð skipaði afmælisnefnd til að
undirbúa dagskrá af þessu tilefni. Í nefndina voru skipaðir Pétur Kr. Hafstein, forseti
Kirkjuþings; sr. Halldór Gunnarsson, kirkjuráðsmaður; og biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson, sem var formaður. Til hátíðarfundar Kirkjuþings er boðið fulltrúum
erlendra systurkirkna. Forseti Íslands mun ávarpa hátíðarfundinn og býður Kirkjuþingi og
gestum þess til móttöku á Bessastöðum.
XI. Lokaorð
Kirkjuráð fjallaði um ýmis önnur mál sem unnt er að lesa um í fundargerðum ráðsins á
heimasíðu kirkjunnar, kirkjan.is. Einnig skal vísað til greinargerðar framkvæmdastjóra
Kirkjuráðs í Árbók kirkjunnar 2007. Þá fylgja skýrslu þessari eftirtalin gögn:
a) Skýrsla þjóðmálanefndar
b) Skýrsla - skoðun á skráðum og þinglýstum eignarheimildum kirkna
c) Skýrsla nefndar um árangursmat í kirkjustarfi
d) Skýrsla um stöðu og starfshætti Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
e) Skýrsla starfshóps um mótun umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar
f) Samband kirkju og fjölmiðla, greinargerð, október 2008.