Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 32
32
prest í Akureyrarprestakalli; og Málfríði Finnbogadóttur, framkvæmdastjóra Ferðaþjón-
ustunnar á Hólum. Málið er í vinnslu.
13. mál. Málið var dregið til baka (málið fjallaði um að sóknarprestar sitji í
sóknarnefnd)
14. mál. Þingsályktun um sálmabók og handbók Þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2007 ályktar að beina því til Kirkjuráðs að gerð verði heildaráætlun vegna
undirbúnings og útgáfu nýrrar sálmabókar og handbókar Þjóðkirkjunnar og að tryggt
verði til þess nægilegt fjámagn.
Kirkjuráð samþykkti að vísa málinu til biskups Íslands og er það til vinnslu þar. Drög að
áætlun hafa verið unnin.
15. mál. Málið var dregið til baka (varðaði staðfesta samvist)
16. mál. Þingsályktun um skipun starfshóps til að meta menntun og kröfur til
guðfræðikandídata og djáknanema
Kirkjuþing 2007 ályktar að fela Kirkjuráði að skipa starfshóp í samráði við
guðfræðideild Háskóla Íslands, sem fjalli um nám og starfsþjálfun þeirra, sem vilja hljóta
vígslu til þjónustu innan Þjóðkirkjunnar.
Starfshópur á vegum biskups og guðfræðideildar, sem í eru dr. Hjalti Hugason, forseti
guðfræðideildar; sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor; og sr. Þorvaldur Karl Helgason,
biskupsritari, hefur unnið að útfærslu á samningi við guðfræðideild um starfsþjálfun. Auk
þess hefur verið unnið að endurskoðun á starfsþjálfun djáknanema undir forystu
Ragnheiðar Sverrisdóttur djákna og verkefnastjóra á Biskupsstofu. Kirkjuráð samþykkti
að óska eftir því að þeir sem að ofan greinir héldu áfram þeirri vinnu í starfshópi sem
skipaður verði. Í hópinn voru skipuð til viðbótar þau dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur og Svala Thomsen djákni. Að beiðni forseta guðfræðideildar var umræðu
um nám í guðfræði og djáknafræðum frestað um sinn, þar sem mikil endurskoðun ætti sér
stað um gjörvallt nám í Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir að sú endurskoðun verði að
mestu komin til framkvæmda um næstu áramót og því ekkert lengur til fyrirstöðu að hefja
viðræður um guðfræði- og djáknanám.
17. mál. Starfsreglur um prestssetur
Starfsreglur þessar voru birtar í B-deild stjórnartíðinda og gefnar út á vef kirkjunnar.
Samkvæmt 3. gr. starfsreglna um prestssetur skipar Kirkjuráð stjórn prestssetra og hefur
verið greint frá því hverjir sitji í stjórninni fyrr í skýrslu þessari. Vísað er til umfjöllunar í
skýrslu þessari um fasteignir Kirkjumálasjóðs.
18. mál. Þingsályktun um að skipaður verði starfshópur um mótun umhverfisstefnu
Þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2007 ályktar að fela Kirkjuráði að skipa starfshóp sem móti umhverfisstefnu
er verði leiðarljós í umhverfisstarfi í söfnuðum Þjóðkirkjunnar. Áliti verði skilað til
Kirkjuþings 2008.