Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 91
91
22. mál - Þingsályktun vegna efnahagsþrenginga Íslendinga
Flutt af allsherjarnefnd
Frsm. Gísli Gunnarsson
Íslenska þjóðin gengur nú gegnum efnahagsþrengingar sem snerta alla með einum eða
öðrum hætti. Margir hafa glatað fjármunum og óvissa er um atvinnu og efnahag
heimilanna. Reiði og kvíði eru tilfinningar sem fylgja þessari óvissu. Jafnframt má víða
sjá æðruleysi og samstöðu fólks á vinnustöðum og í þjóðfélaginu öllu.
Þegar frá líður munu fást skýringar á þeirri atburðarás sem leiddi til þess ástands sem nú
ríkir. Mikilvægt er að umræða fari fram af hreinskilni en einnig að tími sannleikans verði
tími sáttargjörðar í íslensku samfélagi.
Enn sem fyrr eru trúin, bænin og kærleikurinn ómetanleg hjálp í erfiðleikum. Kirkjan er
öllum opin og veitir mikilvægan stuðning með sálgæslu, bæna- og kyrrðarstundum, 12
spora starfi, foreldramorgnum, barna- og æskulýðsstarfi, messum og öðrum samveru-
stundum. Kirkjuþing hvetur söfnuði og stofnanir kirkjunnar til að leita nýrra leiða og vera
vakandi fyrir þeim sem þurfa aðstoðar við.
Kirkjuþing beinir því til safnaða Þjóðkirkjunnar að þeir veiti aðstöðu án endurgjalds í
safnaðarheimilum og kirkjum fyrir starf sem miðar að því að styðja og styrkja fólkið í
samfélaginu við þessar aðstæður.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur að undanförnu fundið fyrir verulegri aukningu
hjálparbeiðna innanlands. Margir sem koma eru að leita aðstoðar í fyrsta sinn. Á sama
tíma er erfiðara og dýrara fyrir hjálparstofnanir og líknarfélög að fá matvörur til úthlut-
unar. Kirkjuþing hvetur Kirkjuráð, héraðssjóði, sóknarnefndir og einstaklinga, sem
aflögufærir eru, til að leggja sitt af mörkum til Hjálparstarfsins.
Ljóst er að víða verður samdráttur í samfélaginu í vetur og að stjórnvöld þurfa að finna
leiðir til sparnaðar. Þegar staða heimilanna verður erfiðari er mikilvægara en nokkru sinni
að styðja börn og unglinga eftir megni og huga að andlegri og líkamlegri næringu þeirra.
Kirkjuþing hvetur ríkisstjórn og sveitarfélög til að láta skólastarf og forvarnarstarf njóta
forgangs þegar erfiðar ákvarðanir um niðurskurð eru teknar.
Margir þeirra sem nú glíma við alvarlegan fjárhagsvanda fá ekki aðstoð samkvæmt
núverandi viðmiðunarreglum. Kirkjuþing hvetur ríkisstjórn og sveitarfélög til að gefa
sérstakan gaum að því.
Prestar, djáknar og starfsfólk þjóðkirkjusafnaða hafa víða samstarf um aðstoð við þá sem
koma að samfélagsþjónustu í sveitarfélögunum. Kirkjuþing hvetur söfnuði og þjóna
Þjóðkirkjunnar til að taka höndum saman við alla þá sem vinna að lausn þeirra verkefna
er við blasa.