Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 47
47
samræmi við markmið frumvarpsins um aðhald í rekstrargjöldum er gert ráð fyrir 1%
lækkun framlagsins frá því sem ella hefði verið, sem nemur 8 m. kr.
Biskupsstofa
Framlag til Biskups Íslands er 1.560,7 m. kr. að frádregnum sértekjum að fjárhæð 73 m.
kr. Um er að ræða launa- og verðlagshækkanir en frumvarpið hækkar um 129 m. kr. frá
fjárlögum 2008 eða um 9%.
Áætlun ársins 2007 gerði ráð fyrir að reksturinn yrði hallalaus en niðurstaða var að
tekjuafgangur var 4,1 m. kr. Skýringin er að hluti launabóta, vegna úrskurðar Kjararáðs í
desember 2006 um hækkun launa presta aftur í tímann, kom inn á fjárlagalið ársins 2007.
Rekstraráætlun ársins 2008 er enn í vinnslu.
Kirkjumálasjóður
1. júlí 2007 voru lög um Prestssetrasjóð numin úr gildi og sjóðurinn sameinaður
Kirkjumálasjóði frá sama tíma. Árið 2007 eru prestssetrin færð sem eign Þjóðkirkjunnar
hjá Kirkjumálasjóði í samræmi við samninga við ríkið um afhendingu prestssetranna til
Þjóðkirkjunnar. Þá hækkaði jafnframt lögboðið framlag tekna Kirkjumálasjóðs úr 11,3%
hlutfalli af sóknargjöldum í 14,3%. Ársreikningur Kirkjumálasjóðs 2007 er sam-
stæðureikningur Kirkjumálasjóðs og Prestssetrasjóðs.
Í ársbyrjun 2008 voru fasteignir Skálholts ásamt skuldum fluttar yfir á Kirkjumálasjóð.
Samningur um launaþjónustu vegna starfsfólks Skálholts er í gildi.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2009 hækkar framlag í Kirkjumálasjóð um 13,6 % milli
áranna 2008 og 2009 eða um 38,5 m. kr. Í áætlun 2009 er gert ráð fyrir að tekjur
Kristnisjóðs að fjárhæð 96,7 m. kr. renni inn í Kirkjumálasjóð og 67 m. kr. af ráð-
stöfunarfé Jöfnunarsjóðs sókna einnig – auk 10 m. kr. vegna starfsmanna Jöfnunarsjóðs
hjá Kirkjumálasjóði. Fyrri umræða um fjárhagsáætlanir fór fram á fundi Kirkjuráðs í lok
september.
Jöfnunarsjóður sókna
Lögboðið framlag í Jöfnunarsjóð sókna er reiknað sem 18,5% hlutfall af sóknargjöldum
og hækkar samkvæmt frumvarpi 2009 sem nemur 13,5% frá fjárlögum 2008 eða um 22,6
m. kr.
Kirkjubyggingasjóður rann inn í ábyrgðadeild Jöfnunarsjóðs sókna árið 2002. Miðað við
stöðu ábyrgðadeildarinnar í árslok 2007 er heimild til ábyrgðaveitinga um 893,7 m. kr.
samkvæmt ársreikningi. Veittar ábyrgðir voru á sama tíma um 270 m. kr.
Í fjárhagsáætlun 2009 er gert ráð fyrir að 15% af ráðstöfunartekjum Jöfnunarsjóðs renni
inn í Kirkjumálasjóð, þ.m.t. af áætluðum vaxtatekjum, eða 67 m. kr. auk 10 m. kr. vegna
starfsmanna Jöfnunarsjóðs sem vistaðir eru hjá Kirkjumálasjóði. Fyrri umræða um
úthlutun til sókna fór fram á fundi Kirkjuráðs í lok september, en héraðsnefndum gefst
kostur á að skoða úthlutanir og gera breytingatillögur.