Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 29
29
2. Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að aflað verði gagna um reynslu
nágrannakirkna af því að fylgja mótaðri fjárfestingarstefnu. Fjármálahópi Kirkjuráðs
verði falið að hafa umsjón með verkefninu og undirbúa drög að fjárfestingarstefnu sem
Kirkjuráð leggi fyrir Kirkjuþing 2008.
Kirkjuráð fól fjármálahópnum að semja drög að fjárfestingarstefnu. Tillaga til þings-
ályktunar um fjárfestingarstefnu Þjóðkirkjunnar er lögð fram í 9. máli og vísast til þess.
Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, fjármálastjóri Biskupsstofu og Jóhann E. Björnsson
kirkjuráðsmaður sóttu ráðstefnu í Brussel í maímánuði 2008 um siðferðilega ábyrgar
fjárfestingar en ráðstefnan var m.a. haldin að tilhlutan CEC – Conference on European
Churches. Skýrsla um ráðstefnuna fylgir 9. máli.
3. Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að í ársreikningi Kirkjumálasjóðs komi fram
hversu miklum fjármunum er varið til barna- og unglingastarfs.
Lagt verður fram fylgiskjal með 2. máli Kirkjuþings 2008 með yfirliti um kostnað vegna
barna- og unglingastarfs, sem fjármálastjóri byggir á upplýsingum úr ársreikningum
Kirkjumálasjóðs og Biskupsstofu 2008.
4. Fjárhagsnefnd leggur áherslu á að unnið verði áfram að rafrænum skilum á
ársreikningum ásamt ársskýrslum sókna. Nefndin ítrekar ábendingar um að fámennum
sóknum verði veitt aðstoð við að koma reikningsskilum í viðunandi horf.
Nefndin gerir tillögu til Kirkjuráðs um að þess verði farið á leit við biskupafund að hann
hlutist til um að sóknir geti sameinast um starf, rekstur og reikningshald.
Hvað varðar fyrri lið samþykktarinnar er vísað til umfjöllunar um upplýsingatæknimál í
skýrslu þessari.
Þá telur Kirkjuráð rétt að haft verði í huga við endurskoðun þjóðkirkjulaga að í lögunum
verði kveðið ítarlegar á um samstarf sókna á þeim grundvelli sem í ályktuninni greinir. Er
því ekki lögð fram tillaga að starfsreglum um þessi efni nú. Biskupafundur hefur rætt
þetta mál einnig. Fyrirhugað er að endurskoða formið á samræmdum ársreikningi sem
tekinn var í notkun fyrir nokkrum árum.
3. mál. Starfsreglur um skipulag kirkjunnar í héraði
Starfsreglur þessar voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda og gefnar út á vef kirkjunnar. Um
var að ræða endurútgáfu á starfsreglubálki sem áður hét Starfsreglur um skipan sókna,
prestakalla og prófastsdæma nr.731/1998. Mælifells- og Miklabæjarprestaköll,
Skagafjarðarprófastsdæmi voru sameinuð í eitt prestakall, svo og fjórar sóknir
Möðruvallaprestakalls, Eyjafjarðarprófastsdæmi í eina sókn.
4. mál. Breytingar á starfsreglum um presta nr. 735/1998
Samkvæmt breytingunni urðu valnefndir tíu manna og vígslubiskupar eru ekki lengur í
nefndinni.
Starfsreglur þessar voru birtar í B-deild stjórnartíðinda og gefnar út á vef kirkjunnar.
Þessar breytingar voru kynntar öllum sem að þessum málum koma og framkvæmdastjóri
og biskup fóru yfir og endurskoðuðu leiðbeinandi reglur biskups sem honum ber að láta
valnefndum í té samkvæmt starfsreglunum.