Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 27
27
Kirkjuráð samþykkti 1,5 m. kr. til verkefna, sem biskupsritari skyldi ráðstafa með áherslu
á samstarf starfsársins.
b) Kirkjuþing ályktar að móta þurfi stefnu um möguleika á fjölgun presta og djákna til að
unnt sé að vinna að frekari uppbyggingu þjónustu kirkjunnar.
Samþykkt var að óska tillagna fjármálahóps um ályktunina er var rædd við síðari umræðu
um fjárhagsáætlanir 2008. Fjármálahópurinn fjallaði í framhaldi af því um ályktunina og
lagði til úrlausn sem Kirkjuráð samþykkti og fram kemur í tillögu að fjárfestingarstefnu
Þjóðkirkjunnar í 9. máli Kirkjuþings 2008.
c) Kirkjuþing ályktar að hvetja Kirkjuráð til að styðja fjárhagslega við bakið á ÆSKÞ í
uppbyggingu starfs meðal fólks á aldrinum 16-25 ára.
Samþykkt var að óska tillagna fjármálahóps um ályktunina er yrði rædd við síðari
umræðu um fjárhagsáætlanir 2008. Kirkjuráð hefur veitt ÆSKÞ góðan fjárstuðning á
árinu með framlögum til húsnæðis- og rekstrarkostnaðar í Kirkjubæ á Akureyri þar sem
aðalskrifstofa ÆSKÞ er. Þá voru framlög Kirkjumálasjóðs hækkuð á árinu frá því sem var
í samþykktri fjárhagsáætlun ársins 2008. Var það m.a. gert til að standa straum af
kostnaði við landsmót æskulýðsfélaga. Minnt er einnig á Kirkjuþing unga fólksins, sem
haldið verður daginn fyrir Kirkjuþing, 24. október 2008.
d) Kirkjuþing ályktar að lýsa andstöðu við framkomið frumvarp á Alþingi sem auðveldar
aðgengi fólks að áfengi, enda gengur frumvarpið þvert á stefnu kirkjunnar í vímu-
varnarmálum.
Ályktun Kirkjuþings var komið á framfæri við Alþingi.
e) Kirkjuþing ályktar að beina því til kærleiksþjónustu kirkjunnar að skoða hvernig
kirkjan geti komið með öflugri hætti að forvörnum og þjónustu við fórnarlömb vímuefna.
Samþykkt var að vísa málinu til kirkjustarfshóps sem skyldi hafa samráð við
verkefnisstjóra kærleiksþjónustu á Biskupsstofu o.fl. Vísað er til umfjöllunar fyrr í
skýrslunni um störf kirkjustarfshópsins.
f) Kirkjuþing ályktar að tryggja þurfi meira fé til að halda utan um og efla fræðslumál og
lífsleikni Þjóðkirkjunnar.
Samþykkt var tillaga fræðslusviðs um starfsmann í hálfu starfi til lífsleikni í
framhaldsskólum.
g) Kirkjuþing ályktar að styðja áform Kirkjuráðs um uppbyggingu bókhlöðu, móttöku- og
sýningarhúss í Skálholti sem og hugmyndir að frístundabyggð en gæta verður þess að
fjármögnun til uppbyggingar og rekstrar sé tryggð.
Kirkjuráð hefur unnið að undirbúningi framangreindra uppbyggingaráforma og hefur
stjórn Skálholts stýrt hönnunarferlinu með verkfræðingum og arkitektum. Hönnun og
byggingarteikningum er lokið og er verkið tilbúið til útboðs. Ríkið skuldbatt sig árið 2006
til að leggja samtals 48 millj. kr. til verkefnisins á næstu átta árum. Kirkjuráð ákvað að
leggja fram sömu fjárhæð á móti, einnig á átta árum. Fjármögnun viðbyggingar hefur
ekki verið tryggð að öllu leyti en vonast hafði verið eftir þátttöku fleiri aðila í verkefninu
en kirkju og ríkis. Vegna lækkandi gengis krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum,
verðbólgu, aukins fjármagnskostnaðar og þeirra almennu verðhækkana sem orðið hafa á