Gerðir kirkjuþings - 2008, Blaðsíða 22
22
Fjármálahópur Kirkjuráðs, sem tengist fjárhagsnefnd Kirkjuþings, er skipaður kirkju-
ráðsmanninum Jóhanni E. Björnssyni, formanni fjárhagsnefndar Kirkjuþings; Einari Karli
Haraldssyni, og fulltrúi biskups Íslands er fjármálastjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg
Geirsdóttir.
Fjármálahópurinn hefur að venju fjallað um fjármál kirkjunnar, einstakra sókna og
kirkjulegra stofnana. Hópurinn hefur lagt fram tillögur til Kirkjuráðs um úrlausnir mála
og unnið að málum samkvæmt samþykktum Kirkjuráðs. Fjármálahópurinn hefur einnig
farið yfir ársreikninga ársins 2007 fyrir Jöfnunarsjóð sókna, Kirkjumálasjóð, Kristnisjóð,
Kynningar-, útgáfu- og fræðslusjóð og Biskupsstofu. Enn fremur hefur hópurinn farið
yfir fjárhagsáætlanir sömu aðila og skilað Kirkjuráði áliti sínu. Fjármálahópurinn fór
austur á Hérað til viðræðna við fulltrúa úr stjórn Kirkjumiðstöðvar Austurlands í maí-
mánuði 2008, svo og prófast og fulltrúa Egilsstaðasóknar vegna hugmynda um við-
byggingu við Egilsstaðakirkju. Vísað er til kafla skýrslu þessarar um fjármál.
Kirkjustarfshópur Kirkjuráðs sem tengist allsherjarnefnd Kirkjuþings, er skipaður
kirkjuráðsmanninum Sigríði M. Jóhannsdóttur, formanni allsherjarnefndar Kirkjuþings;
sr. Guðlaugu Helgu Ásgeirsdóttur; og fulltrúi biskups Íslands er biskupsritari, sr. Þor-
valdur Karl Helgason. Sr. Guðlaug Helga er í námsleyfi.
Kirkjustarfshópurinn hefur bent Kirkjuráði á að æskilegt sé að endurskoða vímu-
efnavarnastefnu Þjóðkirkjunnar sem samþykkt var á Kirkjuþingi 1998. Þá fjallaði
hópurinn um þá könnun sem nefnd um árangursmat lét vinna um nokkur atriði varðandi
hið almenna kirkjustarf, einkum um fermingarstörf, sjá umfjöllun síðar í skýrslunni.
Lagahópur Kirkjuráðs, sem tengist löggjafarnefnd Kirkjuþings, er skipaður kirkjuráðs-
manninum sr. Kristjáni Björnssyni; formanni löggjafarnefndar Kirkjuþings, sr. Þorbirni
Hlyni Árnasyni, og fulltrúi biskups Íslands er framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Guðmundur
Þór Guðmundsson.
Lagahópurinn fjallaði um þinglýsingar kirkna og eignarrétt þeirra, sjá umfjöllun síðar í
skýrslu þessari og fylgiskjal b með henni. Þá fjallaði hópurinn um tillögu að stofnskrá
fyrir Rannsóknarsetur í trúarbragðafræðum og guðfræði og gekk frá endanlegri tillögu,
sbr. 14. mál Kirkjuþings 2008. Lagahópur fjallaði um starfsreglur um presta og vann að
tillögum til breytinga, sbr. 13. mál Kirkjuþings 2008. Einnig fjallaði hópurinn um
hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi við kynningu þingmála í héraði, sbr. umfjöllun síðar
í skýrslu þessari. Vísað skal til þess kafla skýrslu þessarar þar sem fjallað er um lög og
reglur að öðru leyti.
Ráðgjafarhópur um fasteignir, sem tengist fjárhagsnefnd Kirkjuþings, er skipaður
kirkjuráðsmanninum sr. Halldóri Gunnarssyni, kirkjuþingsmanninum Bjarna Kr.
Grímssyni, og fulltrúi biskups er Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskups-
stofu. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, lögfræðingur á fasteignasviði, situr fundi hópsins
og ritar fundargerðir. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, sem veitir jafnframt fasteignasviðinu
forstöðu, hefur setið fundi ráðgjafarhópsins.
Ráðgjafarhópurinn hefur fjallað um ýmis mál er varða fasteignir Þjóðkirkjunnar og
Kirkjumálasjóð. Má þar nefna leigusamninga um aflögð prestssetur, þinglýsingar fast-
eigna Þjóðkirkjunnar, annarra en kirkna og safnaðarheimila, á Kirkjumálasjóð, þing-