Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 24

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 24
 24 Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri upplýsingatæknimála, Örvar Kárason, en hann hefur undanfarin ár unnið að ýmsum málefnum er varða upplýsingatækni, einkum vef kirkjunnar, í hlutastarfi. Þá hefur verið ráðinn umsjónarmaður notendaaðstoðar, Ragna Björk Kristjánsdóttir. Hún mun jafnframt vinna að þróun innri vefja kirkjunnar, skipulagningu tölvunámskeiða o.fl. Hjá Kirkjuráði starfaði Ása Valgerður Gunnsteinsdóttir fulltrúi, í hlutastarfi við ýmis skrifstofu- og ritarastörf, en hún fór til annarra starfa á Biskupsstofu 1. júlí 2008. Í hennar stað var ráðin Guðrún Finnbjarnardóttir, sem fulltrúi, frá og með 1. október 2008. Magnhildur Sigurbjörnsdóttir, viðskiptafræðingur á Biskupsstofu, sinnir verkefnum fyrir Kirkjuráð samkvæmt samningi þess og Biskupsstofu frá 2003, en um er að ræða fjármálaráðgjöf til sóknarnefnda, auk þjónustu við undirbúning úthlutana úr Jöfnunarsjóði sókna. Þá hefur verið unnið áfram að því að afmarka lóðir fyrir kirkjur, kirkjugarða og prestssetur, en um samstarfsverkefni Kirkjuráðs og Kirkjugarðaráðs er að ræða. Skipan í nefndir Samkvæmt 11. gr. starfsreglna um Kirkjuráð nr. 817/2000, er meginreglan sú að Kirkjuráð skipar í þær nefndir sem ráðið skal skipa í, þrjá menn og þrjá til vara til fjögurra ára. Skal skipað frá og með 1. júlí árið eftir kirkjuþingskjör. Samkvæmt því bar að skipa í nefndirnar á árinu 2007 og var það gert eins og grein var gerð fyrir í skýrslu Kirkjuráðs á Kirkjuþingi 2007. Nokkrar breytingar hafa orðið á nefndaskipan eftir að skýrslan var lögð fram og skal gerð nánari grein fyrir því hér. STRANDARKIRKJUNEFND Samkvæmt tilnefningu sóknarnefndar Strandarsóknar, sem barst eftir að skýrsla Kirkjuráðs var lögð fram á Kirkjuþingi 2007, var sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Þorlákshafnarprestakalli, skipaður sem aðalmaður í nefndina og Jóhanna Eiríksdóttir sem varamaður hans. Eins og fram kom í skýrslu Kirkjuráðs á Kirkjuþingi 2007 hafði Kirkjuráð áður skipað formann, Ragnhildi Benediktsdóttur, og Sigríði Dögg Geirsdóttur varamann hennar, og samkvæmt tilnefningu héraðsnefndar Árnessprófastsdæmis sr. Jón Ragnarsson sóknarprest í Hveragerði sem aðalmann og Margréti Jónsdóttur, fulltrúa í héraðsnefnd Árnessprófastsdæmis, Selfossi, sem varamann hans. Gildir skipun nefndarinnar til 30. júní 2011. NEFND UM KÆRLEIKS- OG SÉRÞJÓNUSTU Eins og fram kom í skýrslu Kirkjuráðs fyrir Kirkjuþing 2007 var skipuð nefnd skv. stefnu Þjóðkirkjunnar á sviði kærleiksþjónustu (skv. samþykkt í 15. máli Kirkjuþings 2006). Skipaði Kirkjuráð sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur, sérþjónustuprest fatlaðra; sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sjúkrahúsprest; sr. Kristján Björnsson, kirkjuráðsmann; Ragnhildi Ásgeirsdóttur, djákna; og sr. Svavar Stefánsson, sóknarprest. Sr. Kjartan Örn sá sér ekki fært að taka nefndarstörfin að sér og ákvað Kirkjuráð að skipa í hans stað sr. Vigfús Bjarna Albertsson, sjúkrahúsprest. Sr. Svavar sagði sig úr nefndinni og samþykkti Kirkjuráð að skipa sr. Magnús Björn Björnsson, prest í Digranesprestakalli, í stað hans. Þá vísaði Kirkjuráð 10. máli Kirkjuþings 2007, þingsályktun um endurskoðun á stöðu prestsembætta meðal Íslendinga í útlöndum, einnig til þessarar nefndar. Nefndin skilaði skýrslu til Kirkjuráðs og drögum að þingsályktunartillögu, sbr. 7. mál Kirkjuþings 2008.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.