Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 36

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 36
 36 13. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um presta nr. 735/1998 Um er að ræða breytingar sem fela í sér að heimilt verður að skipa valnefnd með fulltrúum tveggja prestakalla. Byggist það á því að unnt verði að auglýsa embætti presta sem þjóna í tveimur prestaköllum. Núverandi tilhögun starfsreglna um valnefndir gerir ekki ráð fyrir þessu þar sem nefndirnar eru bundnar við prestaköll. Þá er lagt til að meta skuli hæfni og reynslu af stjórnunarstörfum þegar valið er í embætti sóknarprests. Ákvæðum um skiptingu starfa milli presta í prestaköllum þar sem fleiri en einn prestur er, er breytt og þau samræmd betur ákvæðum laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Lagt er til að biskupi sé heimilt að setja skilyrði um prestsþjónustu prests sem veitt er leyfi vegna ásakana á hendur honum. 14. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga að staðfestingu stofnskrár fyrir Rannsóknarsetur í trúarbragðafræðum og guðfræði Kirkjuráð óskar eftir að Kirkjuþing staðfesti stofnskrá fyrir Rannsóknarsetur kirkjunnar í guðfræði og trúarbragðafræðum á grundvelli 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr.78/1997. Stofnunin verði í eigu Þjóðkirkjunnar. Gert er ráð fyrir að aðsetur rannsóknarsetursins verði í Kapellu ljóssins á Vallarheiði í Reykjanesbæ. Rannsóknarsetrið er stofnað, með áðurgreindum fyrirvara um samþykki Kirkjuþings í samstarfi við Guðfræðistofnun Háskóla Íslands, og mun starfa þar í samvinnu við Al- þjóðaháskólann Keili. Rannsóknarsetrinu er ætlað að stefna að samvinnu við erlendar guðfræðistofnanir, háskóla hérlendis sem erlendis, rannsóknarstofur í trúarbragðafræðum, aðrar kirkjudeildir og Samráðsvettvang trúarbragða. Rannsóknarsetrinu er ætlað að vinna að rannsóknum í guðfræði, auka þekkingu og skilning á trúarbrögðum heimsins og stuðla að sáttargjörð ólíkra trúarviðhorfa. 15. mál Kirkjuþings 2008. Tillaga til þingsályktunar um breytta skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma Lagt er til að umræða um þær breytingar sem biskupafundur telur fyrirsjáanlegar á næstu árum á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma hefjist á Kirkjuþingi áður en kynningarferli hefst heima í héraði. Hér er því um nýbreytni að ræða. Rétt er þó að taka fram að hugmyndir þessar hafa verið kynntar hlutaðeigandi sóknum, prestum og próföstum, án þess þó að um formlegar umsagnarbeiðnir hafi verið að ræða. Hugmyndir þessar lúta að sameiningu þriggja fámennra prestakalla við grannprestaköll þegar hlutaðeigandi sóknarprestar láta af embætti. Felur hugmyndin í sér að þau prestaköll sem taka við þjónustu eru styrkt. Biskupar munu meta framhald málsins eftir því hver viðbrögð Kirkjuþings við hugmyndunum verða.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.