Gerðir kirkjuþings - 2008, Page 39
39
a. Málefni prestssetursjarðarinnar Laufáss, Þingeyjarprófastsdæmi, hafa verið til umfjöll-
unar vegna beiðni venslamanna fyrrverandi sóknarprests um áframhaldandi not jarðar-
innar og staðsetningu færanlegs íbúðarhúss þar. Eins og áður hefur komið fram í skýrslu
þessari hafa Kirkjuráð og stjórn prestssetra unnið að samþykkt Kirkjuþings 2007 um að
prestssetursjarðir skuli vera lausar til afnota fyrir presta og hefur því ekki verið talið
koma til álita að fallast á umrædda beiðni. Hins vegar hefur verið gefinn kostur á
viðræðum um tiltekin búskaparafnot á jörðinni en ekkert liggur fyrir um það mál í dag.
Málið er í höndum stjórnar prestssetra. Umræddur aðili er án leigusamnings.
b. Málefni prestsbústaðar á Kolfreyjustað, Austfjarðaprófastsdæmi. Sóknarprestur hafði
óskað eftir að reist yrði nýtt íbúðarhús á Kolfreyjustað. Kirkjuráð lagði til að málið yrði
kannað ítarlega en sóknarpresti var, að eigin ósk, heimilað að flytja á Kolfreyjustað
færanlegan íbúðarskála þar sem hann mun hafa aðsetur til bráðabirgða.
c. Úrlausn óbyggðanefndar vegna Valþjófsstaðar og matsnefndar vegna bóta fyrir
vatnsréttindi og viðbrögð við þeim. Ákveðið var að bera úrlausn óbyggðanefndar um
mörk þjóðlendu og Valþjófsstaðar undir dómstóla. Er því ekki ljóst hvenær endanleg
úrlausn málsins liggur fyrir.
d. Samningar um fyrrum prestssetur. Kirkjuráð samþykkti að segja upp öllum afnota-
samningum um fyrrum prestssetur, svo ráðið gæti endurmetið ráðstöfun þessara eigna.
Um var að ræða eftirtaldar eignir: Skeggjastaði, Ása, Bergþórshvol, Hvol í Saurbæ,
Vatnsfjörð, Árnes I, Prestbakka og Háls í Fnjóskadal. Á Desjarmýri var um að ræða
lífstíðarábúð ábúenda og því ekki hægt að segja þeim upp afnotum af jörðinni. Jarðirnar
Ásar, Bergþórshvoll, Hvoll í Saurbæ, Vatnsfjörður og Árnes I fóru allar í áframhaldandi
leigu. Háls í Fnjóskadal mun verða auglýstur til leigu, en ekki verður leigt til ábúðar skv
ábúðarlögum. Leigutaki á Prestbakka hefur mótmælt framangreindri uppsögn og ber fyrir
sig ákvæði leigusamnings um forleigurétt. Kirkjuþing 2007 heimilaði sölu íbúðarhússins
á Prestbakka ásamt hæfilegri lóð. Var húsið selt Prestbakkasókn en vegna þessa
ágreinings hefur frágangur sölunnar dregist. Um Skeggjastaði er fjallað síðar í skýrslunni.
e. Kirkjuráð fjallaði um málefni prestssetursjarðarinnar Mosfells í Mosfellsbæ. Vísast til
16. máls og greinargerðar með því.
f. Kirkjuráð samþykkti samning um friðlýsingu landssvæðis vegna stofnunar Vatna-
jökulsþjóðgarðs en landsvæði það sem samningurinn nær til er á landi prestssetursjarðar-
innar Valþjófsstaðar að hluta.
g. Reykholt. Kirkjuráð fjallaði um málefni prestssetursjarðarinnar Reykholts. Skipulagðar
hafa verið lóðir fyrir nýja íbúabyggð í Reykholti og hafa nokkur hús risið. Þrjár lóðir eru
lausar. Einkahlutafélagið Reykholtsstaður tók að sér verklega framkvæmd við
undirbúning byggingarsvæðisins, gerð lagna – og veitukerfa, gatnagerð o.fl. Var gert
samkomulag við sveitarfélagið um það mál og tók það þátt í kostnaði við verkefnið. Auk
þess var innheimt gatnagerðargjald af lóðarhöfum. Framkvæmdum er ekki lokið og
úthlutun lóða er í biðstöðu. Samningaviðræður við sveitarfélagið standa yfir. Kirkjuráð
samþykkti að leysa tiltekna kvöð sem hvílir á einkahlutafélaginu um endurgreiðslu
gatnagerðargjalda og brottfall lóðarleigusamnings.
Langanesprestakall varð til við sameiningu Þórshafnarprestakalls og Skeggjastaðapresta-
kalls, Þingeyjarprófastsdæmi. Prestssetur í Langanesprestakalli skal samkvæmt starfs-
reglum Kirkjuþings vera á Þórshöfn. Að beiðni sóknarprests er til athugunar að veita
honum leyfi til að sitja tímabundið áfram á Skeggjastöðum, þ.e. til fardaga 2012.