Gerðir kirkjuþings - 2008, Síða 61

Gerðir kirkjuþings - 2008, Síða 61
 61 innan lögmæltra marka. Í aðdraganda og undirbúningsvinnu þeirrar löggjafar var skýrlega haft að leiðarljósi að ekki væri stefnt að aðskilnaði ríkis og kirkju. Svo er heldur ekki nú enda hefur kirkjan lagt á það ríka áherslu að hún vill vera þjóðkirkja í tengslum við ríkisvaldið án þess að vera ríkiskirkja. Meginhlutverk þeirrar kirkjulaganefndar sem samið hefur lagafrumvarp þetta var að leita leiða til að einfalda almenna löggjöf frá Alþingi um málefni Þjóðkirkjunnar og færa ábyrgð og ákvarðanatöku í þeim efnum í enn ríkara mæli til Kirkjuþings. Að því var stefnt að lög um Þjóðkirkjuna yrðu einföld rammalög þar sem ríkisvaldið mæli fyrir um tilvist Þjóðkirkjunnar, helstu stofnana hennar og grundvöll í samræmi við stjórnarskrár- bundna skyldu til að styðja og vernda hina evangelísku lútersku kirkju sem þjóðkirkju á Íslandi. Vegna þessa sambands ríkis og kirkju verður Alþingi þó að mæla fyrir um meginreglur og lögbundið skipulag er til þess sé fallið að gera kirkjunni kleift að rækja í hvívetna veigamiklar skyldur sínar sem þjóðkirkja á Íslandi. Kirkjulaganefnd lagði frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga fyrir Kirkjuþing 25. október 2008 og hlaut það góðar viðtökur á þinginu. Þótt áður hafi verið við það miðað að frumvarpið kæmi til endanlegrar afgreiðslu á Kirkjuþingi 2009 að lokinni kynningu í söfnuðum landsins var ákveðið, meðal annars vegna hvatningar frá kirkjumálaráðherra við setningu þingsins, að fresta fundi Kirkjuþings um fjórar vikur og ljúka endanlegri afgreiðslu frumvarpsins og síðari umræðu um það á Kirkjuþingi 28. nóvember 2008 en senda frumvarpið áður próföstum og héraðsnefndum til kynningar heima í héraði. III. Í greinargerð með frumvarpi því sem lagt var fram á 121. löggjafarþingi og varð að lögum nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar var fjallað ítarlega um tengsl ríkis og kirkju og tildrög þess að veita Þjóðkirkjunni meira sjálfstæði í innri málum kirkjunnar. Þar sagði meðal annars: „Í 62. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands frá 1944 segir að hin evangelísk-lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi og skuli ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Ákvæði þetta hefur staðið í stjórnarskránni allt frá 1874, en upphaflega var þó notað orðalagið „hið opinbera“ í staðinn fyrir „ríkisvaldið.“ Í stjórnarskránni, sem er hin æðsta réttarheimild, eru ekki gefin nánari fyrirmæli um þetta efni, t.d. um það hvernig ríkisvaldið skuli styðja Þjóðkirkjuna og vernda. Með „ríkisvaldinu“ er vafalaust átt við alla þætti þess, þ.e. löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald og þær stofnanir sem með þessi málefni fara – einkum þá að sjálfsögðu tvo fyrri þættina. Nánari framkvæmd þessa stjórnarskrárákvæðis er því í höndum ríkisvaldsins og ber Alþingi fyrst og fremst ábyrgð á því að með almennum lögum sé tryggt að skilyrðum ákvæðisins sé fullnægt. Það sem mestu máli skiptir varðandi það efni sem hér er til meðferðar er það að af þessari stjórnarskrárgrein verður sú ályktun dregin, svo að tvímælalaust er, að ríki og þjóðkirkja eru ekki eitt – þ.e. tiltekinn aðili, ríkið, á að styðja og vernda annan aðila, Þjóðkirkjuna. Skilyrði þess að vera íslenskur ríkisborgari annars vegar og þjóðkirkjuþegn hins vegar þurfa heldur ekki að fara saman, svo sem kunnugt er. Það breytir ekki þessari niðurstöðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.