Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 94

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 94
 94 Ávarp forseta Kirkjuþings við þingslit Virðulega Kirkjuþing. Nú er komið að lokum þessa Kirkjuþings, sem segja má að hafi starfað við óvenjulegar aðstæður. Annars vegar var minnst merkra tímamóta, bæði 75 ára afmælis Kirkjuráðs og hálfrar aldar afmælis Kirkjuþings. Á setningarfundinn komu margir góðir gestir, ráða- menn okkar og fulltrúar frá systurkirkjunum á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Í máli allra þeirra, sem þar tóku til máls, mátti greina mikinn hlýhug í garð Þjóðkirkjunnar og þess mikla og gefandi starfs, sem unnið er á hennar vegum, bæði hér á Kirkjuþingi og víðs vegar um þjóðfélagið allt. Það er okkur dýrmætt vegarnesti. Á hinn bóginn starfaði þetta Kirkjuþing í skugga einstæðrar efnahagskreppu í þjóðfélaginu og raunar víðar um heim, sem ekki sér fyrir endann á, kreppu sem vafalaust verður mörgum þung í skauti og veldur atvinnumissi, skorti, upplausn heimila og kvíða. Þá reynir til muna á innviði Þjóðkirkjunnar, sérhvern þjón hennar og liðsmann hvar í sveit sem þeir eru settir. Allt það góða starf, sem kirkjan megnar að inna af hendi, verður unnið í trausti og vissu þess að Drottinn leggi líkn með þraut og öll él stytti upp um síðir. Fyrir þetta Kirkjuþing voru lögð 22 mál, sex þeirra voru þingmannamál, Kirkjuráð flutti níu mál og biskup Íslands þrjú mál. Á þinginu sjálfu lagði allsherjarnefnd fram tillögu til þingsályktunar vegna efnahagsþrenginga Íslendinga og fjárhagsnefnd lagði fram þrjú mál, eina þingsályktunartillögu um niðurfellingu á gjaldtöku fyrir fermingarfræðslu og skírn og tvær tillögur um breytingar á starfsreglum, annars vegar um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa og hins vegar um íslensku þjóðkirkjuna erlendis. Verkaskipting nefnda var á þann veg að löggjafarnefnd fékk fjögur mál til meðferðar, fjárhagsnefnd sex mál auk þeirra þriggja sem hún lagði fram og allsherjarnefnd sex mál auk þingályktunartillögunnar frá henni sjálfri. Kirkjuþing hefur afgreitt þessi 22 mál með fjórum starfsreglum um breytingar á eldri starfsreglum, 17 ályktunum og samþykkt um staðfestingu á stofnskrá fyrir Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar, rannsókna- og fræðaseturs í trúarbragðafræðum og guðfræði. Eitt mál var fellt við fyrri umræðu og eitt var dregið til baka. Það er alltaf erfitt að gera upp á milli mikilvægis mála á Kirkjuþingi því að langflest þeirra horfa Þjóðkirkjunni til heilla með einhverjum hætti og styrkja starfsgrundvöll hennar. Umfang málanna er þó að sjálfsögðu mismikið. Það má með góðum vilja og virðingu fyrir öllum þingmálum segja með nokkrum sanni að tvö þeirra hafi sérstöðu að þessu sinni, mál sem með ótvíræðum hætti skýra og skapa þann kirkjurétt, sem með skírskotun til fortíðar vísar leiðina til framtíðar. Annað þeirra eru hinar gagnmerku og ítarlegu samþykktir um innri málefni kirkjunnar, sem biskup Íslands hefur unnið að og lagt fram til umræðu og skoðanaskipta þótt endanlegri afgreiðslu málsins verði ekki lokið fyrr en á Kirkjuþingi 2009. Hitt málið er það frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga, sem varð þess valdandi að Kirkjuþingi var frestað hinn 30. október síðastliðinn til dagsins í dag. Þetta frumvarp hefur verið unnið í góðri samvinnu við dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason, sem hvatti eindregið til þess í ræðu sinni á setningarfundi Kirkjuþings að þingið samþykkti frumvarpið og lýsti sig reiðubúinn til að vinna þegar að framgangi

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.