Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 21
Tímarit um Menntarannsóknir, 1 árg. 2004, 19-25
19
Fjarskipti í þágu menntunar
Sigrún Gunnarsdóttir,
Landssfma íslands
Ebba Þóra Hvannberg,
Háskóla íslands
Sæmundur E. Þorsteinsson
Landssíma Islands
Tæknistutt nám býður upp á nýjar víddir í skólaumhverfinu. í stað þess að einbeita sér að
upplýsingatækninni einvörðungu þá er nú farið að beina sjónum meira að námsefninu, nýjum
námsaðferðum, þjálfun kennara, samskiptum innan skólans sem og við aðra skóla, jafnt hérlendis
sem erlendis. Kennarar og nemendur eru að aðlagast nýju umhverfi og áhrifum þess á námskrár,
þörfum á tæknilegri aðstoð og breytingum á stjómun innan skólanna. Þetta tekur tíma og krefst þess
að kennarar læri að nýta þau tækifæri sem í boði eru, nýtt námsefni og nýja þjónustu. Nemendur
verða einnig að læra að feta sig áfram í hinum nýja heimi og læra að vinna sjálfsætt, vinna markvisst
að framförum miðað við sína getu, til þess að verða sjálfstæðir, ábyrgir og skapandi einstaklingar
í framtíðinni. Það eru margar hindranir sem þarf að yfirstíga áður en upplýsingatæknin fer að skila
okkur áhrifaríku skólastarfi. Fyrst ber þar að nefna viðeigandi þjálfun fyrir kennara. Þjálfunin er
að færast úr því að kenna á tölvur í það að kenna hvernig hægt sé að nota þær til þess að nýta
nýjar eða núverandi kennsluaðferðir á áhrifarrkan hátt. Síðan ber að nefna að aðgengi að námsefni
er takmarkað og erfítt er að bjóða ólíkum einstaklingum mismunandi kennsluefni eins og krafist
er í einstaklingsmiðuðu námi. Möguleikar fjarskipta- og upplýsingatækninnar til þess að koma til
móts við aukna útbreiðslu og aðgengi að fjölbreyttu námsefni er umfjöllunarefni þessarar greinar.
I grein þessari er fjallað um kerfrn EducaNext4 og Snjallt námsver (e. Smart learning space* 2)
en þau hafa verið þróuð í tveimur evrópskum rannsóknarverkefnum sem höfundar starfa innan.
EducaNext er miðlari sem var hannaður með samvinnu háskólanna í Evrópu í huga. Þessi miðlari
aðstoðar kennara við að skiptast á námsefni með því að geyma og leyfa fyrirspumir um námsefnið
en námsefnið sjálft er þó geymt hjá útgefendum eða höfundum. Hugbúnaðarkerfið Snjallt námsver
sem má líta á sem framhald af EducaNext hefur það að markmiði að setja upp þróað umhverfi til
endurmenntunar fyrir starfsmenn fyrirtækja. Nám í þessu umhverfi byggist á svonefndum P2P (e.
peer-to-peer) fjarskiptum þar sem unnt er að bjóða ýmiss konar námsþjónustu. I P2P eða það sem
mætti kalla jafningjafjarskipti er efni ekki safnað á miðlægan þjón heldur geymt á dreifðan máta.
Hægt verður að halda utan um mismunandi þarfir einstaklinga og hanna námsferil sem hentar
hverjum og einum sem best. Grunnurinn að því að Snjallt námsver geti orðið að veruleika, er að
styðjast við þekkta staðla varðandi gagnaskráningu námsefnisins, persónuupplýsingar nemenda og
það samhengi sem nemendur vinna í eins og til dæmis starfsvettvang þcirra. Markmið greinarinnar
er að vekja athygli á því að þótt hver skóli eða kennari noti sitt eigið kerfi er nauðsynlegt að hægt
sé að tengja kerfin saman og að gæði þcirra jafnt sem gæði efnis sé haft í fyrirrúmi. Tímabært er að
fjalla um samþættingu kerfanna, því námsumhveifi á fslandi er að þróast í átt að meiri samvinnu,
bæði innanlands og utan, bæði vegna hagræðingar og fjölbreyttara námsvals. Hér verður lýst
nokkrum tegundum upplýsingakerfa í námi og kennslu. Þar á eftir er fjallað um hvernig haga
má stöðluðum samskiptum á milli kerfanna og tekið dæmi úr Snjöllu námsveri og EducaNext.
Helstu stöðlum og staðlahönnuðum í námsumhverfi er lýst þar næst. I kaflanum Gæðatrygging
greinum við frá því hvernig EducaNext kerfið var notendaprófað og við lýsum því hvemig
rannsóknamiðstöð um framtíðarnám getur verið þverfaglegur vettvangur sérfræðinga og notenda.
'Vefsíða EducalNext er http://www.educalnext.org
2Vefsíða Elena verkefnisins er http://www.elena-project.org
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur2004