Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Qupperneq 33
31
ekki bara ég sem var að rannsaka kennsluna,
kennararnir voru að rannsaka eigin kennslu.
Einn daginn þegar ég kom í heimsókn var
bekkurinn á leið í ritvinnslu, sumir áttu að fara
á bókasafnið en aðrir í tölvustofuna. Ég fór
með og skráði eftirfarandi lýsingu á eftir:
Tölvukennarinn heilsar nemendum um leið og
þeir koma í tölvuverið. Hann kynnir tölvuforritið
sem nemendur eiga að nota og athugar hvort þeir
kunni ekki að kveikja á tölvunni og forritinu.
Börnin setjast niður og geta varla beðið eftir að
byrja, sum vita nákvæmlega hvað þeim ber að
gera en önnur eru búin að gleyma og þurfa aðstoð.
Eg fylgist með kennurunum tveimur og börnunum
og langar avleg óskaplega mikið til að taka þátt í
vinnunni, sumir nemendur eru með hendur á lofti
vegna þess að þeir þurfa á aðstoð að halda og
kennararnir tveir mega hafa sig alla við. Eg velti
fyrir mér hvað ég eigi að gera en áður en líður á
löngu þá biður einn drengjanna mig um aðstoð.
Bömin vinna á Kidspick, forrit sem ég þekki mjög
vel svo ég á ekkert í vandræðum með að aðstoða.
A sama tíma og ég aðstoða nemendur fylgist
ég með Björgu, en áður en ég veit af hringir
skólabjallan og tíminn er búinn. Björg lítur á
mig og þakkar mér fyrir hjálpina en ég svara að
ég bara gleymi mér alltaf mér sé svo eðlilegt að
kenna, en spyr um leið hvort ekki hafi verið í lagi
að ég gripi inn í. Hún hélt það nú og óskaði þess
bara að ég væri þarna alla daga.
Eftir tímann settumst við Björg niður og ræddum
um það sem gerðist í tímanum, um ákafa barnanna,
vandamálin sem koma upp ef kennarinn er ekki
nógu vel að sér í notkun forritsins, væntingar
og kröfur til kennarans af því að þetta er mikil
einstaklingskennsla og nemendur með mjög ólíka
fæmi. Af nógu var að taka bara eftir þennan eina
stutta tíma og auðvelt að gleyma sér í vangaveltum
um hvemig nám fer fram og hvemig best er að
bregðast við hverjum og einum nemanda. Það var
ég sem skráði því kennarar eiga oft erfitt með að
finna tíma til þess í annríkinu en þeir lásu yfir,
komu með athugasemdir og bættu við ef þeim
fannst ég ekki nógu nákvæm.
Samræður kennara
A meðan á rannsókninni stóð þá tók ég bæði
formleg viðtöl við kennarana sem voru alltaf
hljóðrituð og afrituð og óformleg sem voru
skráð niður jafnóðum. Ég tók mörg „viðtöl”
við hvern kennara og skipulagði þau á þann
veg að þau urðu að samræðum milli mín og
þeirra. Sem kennari til margra ára þekki ég vel
“kennaratal” og hef tekið þátt í því og hlustað
á reynslusögur kennara, bæði þegar vel gengur
og illa. Ég reyni að hafa að leiðarljósi að
viðtöl verði að samræðum þegar gagnkvæm
viðbrögð og skoðanaskipti eiga sér stað, þegar
báðir aðilar taka jafnan þátt í að hlusta, segja
frá, skilja og læra af hinum aðilanum (Dalmau
& Hafdís Guðjónsdóttir. 2000a; Dalmau &
Hafdís Guðjónsdóttir, 2000b). Samræðuformið
skipti miklu máli í rannsókninni vegna þess
að það ýtti undir að við kennaramir værum
afslappaðir er við ígrunduðum viðhorf þeirra
til kennslu og vangaveltur um hana, innsýn og
trú á starfið.
Eftir eitt viðtalið sagði einn kennarinn við
mig:
Hafdís, ég var að segja vinkonu minni frá því að
ég tæki þátt í rannsókn á kennslu og það væri svo
mikill lúxus því að ég fengi tækifæri til að tala
um kennslu í marga klukkutíma. En Hafdís, mér
finnst svolítið leiðinlegt hve ég tala mikið og að
þú fáir varla að komast að.
í samræðum okkar þá töluðu kennaramir
um athafnir sínar, skilning á námi og kennslu,
hvernig kenningar tengdust framkvæmdinni
og rökræddu gerðir stnar. Þessu til viðbótar
þá skiptumst við á lesefni og létum hugann
reika um kennsluhætti og kennsluaðferðir og
um hvernig við læmm. Þannig sköpuðum við
aðstæður og tækifæri til að ígrunda kennslu
og öðlast nýja þekkingu, en einnig hjálpaði
þetta kennurunum við að taka ákveðamir og
undirbúa kennsluna.
Hugtakakort
Á undanfömum árum hefur áhugi á notkun
skýringamynda við skipulagningu þekkingar,
miðlun hennar og leit að nýjum og bættum
skilningi farið vaxandi (Buzan & Buzan, 1993;
Hyerle, 1996; Martin & Kompf, 1996). Sjónræn
framsetning á því hvernig einstaklingar sjá
og skilja eigin þekkingu geta nýst mjög vel
við sköpun og þróun nýrrar þekkingar eða
skilnings. Hugarkort eða hugtakakort lýsir
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004