Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 123

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 123
121 og hér. Markaðurinn er lítill og því hætta á að til verði fyrirtæki, sem geri út á opinber matsverkefni, sem sníða skýrslurnar þannig að þær falli í frjóan jarðveg fjármálaaflanna. Annað vandamál sem House telur afleiðingu þessarar stefnu er að í hverri stofnun vill fólk fá mjög sérhæfðar upplýsingar sem aftur leiðir til þess að misskilningur verður algengur. Fáir þeirra sem framkvæma eða kaupa matið búa yfir heildrænni mynd af stofnunum. Sífellt er verið að brjóta upplýsingar um tiltekin atriði niður í smærri eindir. Upplýsingar um heildina eru til staðar en komast sjaldan alla leið og ef horft er til Senge (2000) má telja þetta gjald sérhæfingarinnar. House bendir líka á að opinberir aðilar sem kaupa mat eru venjulegast í mjög litlum samskiptum við þær stofnanir senr eru metnar. Því hafí nratsbeiðandi oft ekki aðra mynd af viðkomandi stofnun en þá sem er á pappírum og það viti allir, sem vilja, að það er töluvert önnur mynd en af lifandi stofnun. Hann telur þetta skapa ákveðna fjarlægð milli þeirra sem metnir eru og matsbeiðenda sem ekki er holl, jafnvel skaðleg. Hann varar líka við þeirri hættu, sem hann segir raunverulega, að matsfólk eigi það til að samsama sig þeim sem þeir eru að meta og gefa þá of jákvæða mynd af starfseminni. Þarna bendir House aftur á atriði sem erfitt getur verið að komast hjá í litlum samfélögum. House tekur dæmi frá rfkisstofnunum í Bretlandi sem breyttu niðurstöðum mats af því að þeim líkaði ekki niðurstaðan. Hann hefur áhyggjur af slíkum vinnubrögðum og spyr hvort slíkt dragi ekki úr trú almennings á mati. Dæmi um slíka tilhneigingu er til hérlendis og má þar benda á frumskýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa um flugslysið í Skerjafirði árið 2000 (sjá helstu niðurstöður úr frumskýrslu í grein í Morgunblaðinu, laugardaginn 7. aprfl, 2001) og síðan lokaskýrsluna (sjá skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa á heimasíðu vvvvvv.rnf.is) sem var umtalsvert frábrugðin, meðal annars vegna áhrifa hagsmunaaðila.’ Frá sjónarhorni matsfræða er það mikla ósamræmi sem fram kemur afar áhugavert. Má velta fyrir sér hvort til dæmis smæð samfélagsins og náin vina- og ættarbönd hafi ráðið einhverju um þær breytingar sem gerðar voru. Ljóst má vera að matsfræðingar geta ekki leyft sér þau vinnubrögð að telja að viðskipta- vinurinn hafi ávallt rétt fyrir sér. í viðtali við Bickman (Fitzpatrick, 2002) segir hann frá því hvemig reynt var að hafa áhrif á matsverkefni, sem hann vann fyrir bandaríska herinn, með því að veifa sérfræðiáliti. Til dæmis reyndu yfirmenn hersins að setja hömlur á fjölda þátttakenda í matinu. Herinn keypti „sérfræðing” sem gaf það álit að Bickman og félagar væru þegar komnir með nægjanlegan fjölda þátttakenda. Seinna kom í ljós að viðkomandi sérfræðingur var með doktorsgráðu í verkfræði en ekki félagsvísindum. Umfangsmikil matsverkefni eru dýr og Bickman segir frá því hvernig reynt var með tilvísun í akademískt gildi að fá þá til að slá af matsverðinu. Herinn benti á að háskólinn græddi á verkefninu með því draga að sér betri doktorsnema. Eins og dæmin sýna er margt áhyggjuefnið sem matsfólk þarf að fást við. Siðferðilegar vangaveltur Siðferðilegar spurningar eru eðlilegur þáttur í öllum rannsóknum. Sem fyrr segir eru skilin á milli rannsókna og mats oft óljós. Telja má að siðferðilegar vangaveltur og afstaða séu ef eitthvað enn mikilvægari þegar rætt er um mat en rannsóknir. Weiss (1998b) bendir til dæmis á að í mati séu þátttakendur raunverulegt fólk og niðurstaða matsins geti haft beinar afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf þess og kjör. Auðvitað er fólk iðulega þátttakendur í rannsóknum en þátttakan hefur sjaldnast bein áhrif á líf ’Þeir sem vilja kynna sér málið nánar er bent á umfjöllun og samanburð á skýrslunum á heimasíðu sem haldið er úti af aðstandendum þeirra létust í flugslysinu í Skerjafirði: www.llugslys.is Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252
Side 253
Side 254
Side 255
Side 256
Side 257
Side 258
Side 259
Side 260

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.